HÚSASJÁ

Hringbraut 119

01-0404 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

65 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1984

Byggingarár

2844 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Þvottahús



274 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

1.000.000 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir. Falleg og björt, mikið endurnýjuð, 3ja herbergja 64,9 fm íbúð á 4. hæð í 5 hæða lyftuhúsi við Hringbraut í Vesturbæ Reykjavíkur. Samkvæmt Þjóðskrá er eignin skráð 64,9 fm og auk þess fylgir íbúðinni stæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari lýsing: Íbúðin er á tveimur hæðum. Komið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er svefnherbergi með mikilli lofthæð, þvottaaðstaða og baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa og snyrtilegri innréttingu. Fallegur teppalagður stigi liggur upp á efri hæðina þar sem komið er í bjart og opið alrými með stofu og eldhúsi. Efri hæðin er að hluta til undir súð og nýtist því mun betur en fermetratala gefur til kynna. Út frá stofu er tvöföld hurð út á svalir með góðu útsýni til vesturs. Inn af alrýminu er rúmgott svefnherbergi með geymslurými og útsýni til Esjunnar. Nýlegt parket og innréttingar eru í allri íbúðinni ásamt nýrri svalahuð. Hús og þak var málað í fyrra einnig er sameiginlegur stigagangur ný málaður og teppalagður.

Í sameign er hjólageymsla og sameiginlegt þurrkherbergi. Eigninni fylgir merkt bílastæði í bílageymslu, númer 07B17.

Íbúðin er í útleigu og laus samkvæmt samkomulagi.

Nánari upplýsingar veita :

Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í tölvupósti ulfar@fastborg.is og í síma 788-9030

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali í tölvupósti victor@fastborg.is og í síma: 868 2222

Kort af Hringbraut 119

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Hringbraut 119, 01-0404 | Húsasjá