HÚSASJÁ

Boðagrandi 6

02-0201 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

97 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1979

Byggingarár

2183 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



9 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

827.122 kr/m²

Heimili fasteignasala kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð í litlu fjölbýli að Boðagranda 6 í 107 Reykjavík. Eignin er skráð 96,6 fm að stærð, þar af íbúðarrými 90,6 og geymsla 6,0 fm, og samanstendur af anddyri/holi, eldhúsi, borð- og setustofu, suður svölum, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi ásamt geymslu (0110) og sameign. Vel skipulögð eign í Vesturbæ Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs, brynjolfur@heimili.is

Nánari lýsing.

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.

Eldhús: Ljós og falleg innrétting með miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu og flísum á milli efri og neðri skápa. Í eldhús er rúmgóður borðkrókur og stór gluggi með útsýni til sjávar. Á gólfi eru flísar.

Setustofa/borðstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og útgengi á stórar og skjólgóðar suður svalir.

Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott með stórum fataskáp. Á gólfi er parket.

Barnaherbergi: Parketi á gólfi og laus fataskápur innan herbergis.

Baðherbergi: Stór eldri innrétting, mikið skápapláss, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísalagður sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins, aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.  Á bak við hús er sameiginlegur garður og nýleg sameiginleg timburverönd.

Að sögn seljanda var húsið múrviðgert og málað árið 2019, þakjárn endurnýjað sem og hluti af borðaklæðningu, þakkantur og rennur.

Falleg íbúð á frábærum stað í Vesturbænum þar sem er stutt í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug og alla helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.

Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Kort af Boðagrandi 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29