Rekagrandi 4
02-0501 · 107 Reykjavík



23 dagar á sölu
89.900.000 kr
848.113 kr/m²
**Efsta hæð**
**íbúð á tveimur hæðum**
**Útsýni**
**Endaíbúð*
Hrafn Valdísarson löggiltur fasteignasali kynnir snyrtilega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með stórkostlegu útsýni auk stæði í bílageymslu við Rekagranda 4 í Reykjavík.
Stærð eignarinnar er alls 106 fm og skiptist samkæmt Þjóðskrá Íslands í 69 fm neðri hæð og 37 fm efri hæð. Geymslan er ekki í fermetratölu. Sér bílastæði í upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni, ásamt hlut í sameiginlegum rýmum og reiðhjólageymslum.
Eignin skiptist í anddyri, 2 baðherbergi, 3 stór svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými.
Allar upplýsingar veitir
Hrafn Valdísarson Löggiltur fasteignasali í síma 845-9888 eða hrafn@fastlind.is.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri: fataskápur
Baðherbergi: Rúmgott og flísalegt að hluta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara með góðu skápaplássi. Baðkar með sturtuaðstöðu
Eldhús: Snyrtileg sérsmíðuð innrétting.
Stofa: Björt með stórum gluggum og útgengi út á svalir til suðurs með útsýni.
Svefnherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.
Efri hæð:
2 rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og sturtuklefi.
Geymsla: Er á jarðahæð hússins og er ekki í fermetratölu eignarinnar.
Sér bílastæði í upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni.
-Þakjárn hússins var endurnýjað 2022 og málað 2023
-Húsið var múrviðgert 2014/2015.
-Húsið málað að utanverði að hluta til 2022
-Svalagólf og timburverk á svölum endurnýjað 2023
-Timburverk í gluggum á suðurhlið endurnýjað 2023
-Nýtt gler í rúðum á suðurhlið íbúðar 2023
-Ný svalahurð 2023
-Teppi í sameign endurnýjað og sameignin máluð 2021
-búið er að leggja rafmagn í stæði og festingu fyrir hleðslustöð
Mjög góð staðsetning og mikil þjónusta í hverfinu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Íþróttasvæði KR í næsta nágrenni.
Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.
.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








































