HÚSASJÁ

Öldugrandi 9

05-0103 · 107 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

94 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1982

Byggingarár

7001 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla



355 dagar á sölu

sell

69.500.000 kr

742.521 kr/m²

Opið hús sunnudaginn 1. mars frá kl 13:00 til 13:30 - Öldugrandi 9, 107 Reykjavík, 107 Reykjavík - íbúð 0103

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað við Öldugranda í Vesturbænum.

Eignin er skráð 93,6 fm (þar af er bílastæði sem fylgir eigninni skráð 25,8 fm). Íbúðin sjálf er 67,8 fm.

Að auki fylgir íbúðinni stór geymsla í kjallara  - geymslan er EKKI inni í birtri fermetratölu eignarinnar. Stærð geymslunnar er ca 7-8 fm.

Séreignarfermetrar eignarinnar eru því um 75 fm (íbúð 67,8 fm + geymsla um 7 fm)

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Lýsing eignar:

Forstofa: Harðparket á gólfi, fatahengi.

Setustofa/borðstofa: Rúmgóð og björt, hálf opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á hellulagða verönd sem er bæði hellulögð og með timburpalli, veröndin snýr í suðvestur.

Eldhús: Hvít nýlega endurnýjuð innrétting, gott skápa og vinnupláss, borðkrókur, gluggi.

Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápar.

Baðherbergi: Dúkur á veggjum og gólfi, baðkar, tengi fyrir þvottavél.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara, innangengt úr húsinu. Einnig fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara hússins.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Húsið var múrviðgert og málað árið 2020 - þakjárn hússins var endurnýjað árið 2020

Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu (Eiðistorg og Grandinn í næsta nágrenni) fallegar gönguleiðir við sjávarsíðuna

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Öldugrandi 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu