Gnoðarvogur 82
01-0301 · 104 Reykjavík



45 dagar á sölu
109.000.000 kr
832.697 kr/m²
Miklaborg kynnir: Glæsilega efstu hæð í fjórbýli við Gnoðarvog 82. Íbúðin er skráð 130,9 fermetrar og skiptist í forstofu, alrými með stofu og eldhúsi með útgengi á svalir, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Stór suðurgarður fylgir húsinu. Frábær staðsetning steinsnar frá verslun og þjónustu.
Bókið einkaskoðun hjá Þresti Þórhallssyni löggiltum fasteignasala í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan stigagang að framanverðu húsinu upp á stigapall á efstu hæð. Þar er inngangur í íbúðina, komið er inn í forstofu með stórum innbyggðum fataskápum þar sem svefnherbergisgangur er á vinstri hönd og alrými á hægri hönd. Alrýmið er rúmt og þar eru stofa, borðstofa og eldhús með eyju. Inn af eldhúsinu er þvottahús og útgengt á fallegar þaksvalir með útsýni til norðurs. Á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Í hjónaherberginu eru innbyggðir fataskápar á heilum vegg ásamt fataherbergi með skápum. Í stærra aukaherberginu eru stórir fataskápar. Á baðherberginu er uppengt klósett og walk-in sturta með riffluðu gleri. Falleg handlaug með gylltum blöndunartækjum, veggskapur með spegli. Flísar á gólfi og veggjum til lofts að hluta til, gluggi með opnanlegu fagi. Eikar innihurðir eru hannaðar af danska hönnunarhúsinu Dinesen fyrir danska hurðarframleiðandann Vahle
Gólfefni: Fallegt parket á gólfum er gegnheil hnota. í öllum rýmum nema á baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi eru flísar. Gólfhiti í allri íbúðinni. Íbúðin var endurgerð 2022 og þá var þak endursmíðað ásamt einangrun og settur þakpappi. Allir gluggar nema einn eru nýlegir. Sérgeymsla er í sameign undir útitröppum og á jarðhæð hússins er líka sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Ath. íbúðin er skráð samkv. Þjóðskrá Ísl. 130,9 m2 en yfirbygging á svölum í norður hefur verið tekin niður og íbúðin er því í raun um 120,9 m2 að stærð fyrir utan svalir. Einstakt útsýni í allar áttir.
Frábær staðsetning steinsnar frá verslun og þjónustu í Skeifunni. Menntaskólinn við Sund og Vogaskóli eru í 5. mín. göngufjarlægð.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
































