HÚSASJÁ

Faxafen 9

01-0003 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

746 m²

Stærð

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

2132 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



250 dagar á sölu

sell

235.000.000 kr

314.845 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu frábærlega staðsett 746,4 fermetra iðnaðarhúsnæði í kjallara með 3,5 metra lofthæð og innkeyrsludyrum sem eru 3,3 metrar á hæð og 3,0 metrar á breidd við Faxafen í Reykjavík.

Aðkoma að húsnæðinu er góð um breiðan ramp.  Eignin hefur verið í útleigu að hluta og mikil eftirspurn hefur verið eftir að leigja rými í henni.

Lýsing eignar:

Um er að ræða 746,6 fermetra vörugeymslu sem hefur verið stúkuð niður að hluta til með léttum veggjum í nokkrar minni einingar og eina stóra, en auðvelt er að fjarlægja þá og nýta allt rýmið sem eina heild.

Gólf eru vélslípuð og lökkuð, hitablásarar eru í húsnæðinu, mótor á innkeyrsluhurð, niðurföll eru í gólfum, 3ja fasa rafmagn, öryggiskerfi og myndavélakerfi er í húsnæðinu og 4 x flóttaleiðir upp um lúgur á plani.

Lyftari getur fylgt með eigninni.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í borginni og aðkoma að eignarhlutanum er mjög góð um breiðan steyptan ramp.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Kort af Faxafen 9

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Faxafen 9, 01-0003 | Húsasjá