HÚSASJÁ

Gnoðarvogur 76

01-0301 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

100 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1960

Byggingarár

678 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



190 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

747.505 kr/m²

BJÖRT OG FALLEG ÚTSÝNISÍBÚÐ Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ - 104 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 100,2 fm.

Um er að ræða bjarta 4ra herb. íbúð á efstu hæð í steinsteyptu fjórbýli byggðu árið 1960.

Íbúðin er skráð 99,7 fm. á hæðinni, sér lítil geymsla fylgir í kjallara, skráð 0,5 fm. Fyrir framan íbúðina er stigapallur með fatahengi sem nýtist þessari íbúð. Við anddyri er gangur sem aðskilur allar vistarverur íbúðarinnar, til vinstri í enda gangsins er eldhúsið og eitt svefnherbergi. Til hægri er hjónaherbergið og eitt svefnherbergi með baðherberginu á milli. Borðstofan og stofan eru beint inn af inngangi. Rúmgóðar útsýnis suðvestur svalir sem gengið er út á úr borðstofunni. Sameiginlegt þvottahúsi er í kjallara.

Forstofa/Gangur: Parket á gólfi og fataskápar.

Eldhús: Mjög rúmgott með hvítri innréttingu, broðkrókur og spanhelluborð, flísar á gólfi.

Stofa/Borðstofa:  Rúmgóðar og bjartar, útgengt út á suðvestur góðar grill svalir með miklu útsýni, parket á gólfum.

Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú með parketi á gólfum, gott skápapláss er í hjónaherberginu og stærra barnaherberginu.

Baðherbergi: Baðkar með sturtutengi, lítil innrétting við handlaugina og skápur, gluggi.

Geymsla: Sér lítil geymsla fylgir í kjallara.

Lóðin: Frágengin og snyrtileg, sameiginlegur garður.

- Íbúðin er öll afar rúmgóð og nýtist vel.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.

-  Árin 2016 - 2017 voru skolplagnir endurnýjaðar og drenað ásamt vatnslögnum, í framhaldi af því var gólfið í kjallara og sameiginlegu þvottahúsi flotað og lakkað.

Staðsetningin er frábær, einstaklega fallegt útsýni úr stofum og svölum.

ATH! Snyrtilegt umhverfi, sameiginlegur garður, stutt er í skóla, leikskóla, verslun og laugardalinn.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Kort af Gnoðarvogur 76

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu