HÚSASJÁ

Barðavogur 36B

01-0101 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

264 m²

Stærð

3

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1954

Byggingarár

614 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla



471 dagar á sölu

sell

165.000.000 kr

624.291 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Mjög falleg og mikið endurnýjuð 264,3 fm neðri hæð auk hluta kjallara í 2-býlishúsi við Barðavog 36 í Reykjavík. Bílskúr tilheyrir. Sér inngangur. Hæðin skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur með arni, sólstofu, eldhús, þrjú herbergi og baðherbergi. Í kjallara hefur verið innréttuð 3ja herb. íbúð*. Rúmgóð geymsla er í kjallara. Aukin lofthæð er á aðalhæð hússins. Svalir eru út af stofum. Stór gróin lóð til suðvesturs. Hiti er í bílaplani fyrir framan bílskúr.

Nánari uppl. veita: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu með skápum.

Stofur: Tvær samliggjandi glæsilegar stofur með arni. Stofurnar eru bjartar og með stórum gluggum. Gólf er parketlagt (nýslípað parket). Hægt væri að nýta aðra stofuna sem herbergi.

Eldúsið: Eldhúsið hefur verið endurnýjað. Ný falleg ljós Ikea innrétting. Stór borðkrókur er í eldhúsi. Gólf er parketlagt (nýslípað parket).

Sólstofa: Innaf eldhúsi er nýleg flísalaögð sólstofa. Frá sólstofu er gengið út á svalir og þaðan niður í garð.

Baðherbergið: Baðherbergið hefur verið standsett. Sturta er á baðherbergi. Gluggi.

Herbergi 1: Rúmgott parketlagt hjónherbergi. Nýlegt parket er á gólfi.

Herbergi 2: Rúmgott flíslagt herbergi (hægt að ganga í herbergið bæði frá svefnálmu og forstofu).

Herbergi 3: Vinnuherbergi innaf forstofu. Nýlegt parket er á gólfi.

Kjallari: Í kjallara hefur verið innréttuð 3ja herb. íbúð.* Endurnýjað eldhús og baðherbergi. Lofthæð er aðeins lægri í kjallara.

Sér geymsla er í kjallara og sameiginlegur kyndiklefi.

Bílskúr: 38,4 fm bílskúr. Hiti er í bílaplani.

Samkvæmt Fasteignayfirliti er rými 0101 (á 1. hæð - íbúð) skráð 133,3 fm, rými 0001 (í kjallara - tómst.r./geymslur) skráð 83,3 fm og rými 0002 (í kjallara - geymsla) skráð 9,3 fm. Bílskúr er skráður 38,4 fm. Samtals 264,3 fm.

Nýlegar framkvæmdir utanhúss samkvæmt upplýsingum frá seljanda:

Húsið hefur nýlega verið múrviðgert og málað. Þak hússins var yfirfarið og þakkantur endurnýjaður.

Frárennslislangir voru nýlega endurnýjaðar, frá kjallara og út í götu. Gluggar og gler hefur verið endurnýjað að hluta til.

Stutt er í skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Barðavogur 36B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu