HÚSASJÁ

Gnoðarvogur 16

02-0401 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

74 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

3922 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



29 dagar á sölu

sell

62.500.000 kr

848.033 kr/m²

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í snyrtilegu fjölbýli við Gnoðarvog 16 í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og Laugardalinn með fjölda göngu- og hjólaleiða.

Birt stærð eignar er 73.7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 6,3 fm geymsla.

Eignin skiptist í forstofu eða hol, stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu í kjallara.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing:

Forstofa / hol með innbyggðum fataskáp, flísar á gólfi.

Eldhús, bjart og rúmgott með góðum borðkrók, nýleg innrétting og innbyggð uppþvottavél sem fylgir, flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa, bjart opið rými, parket á gólfi og útgengt á vestursvalir.

Svefnherbergi I með fataskáp, harðparket á gólfi.

Svefnherbergi II, parket á gólfi.

Baðherbergi, flísalagt að mestu með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtustöng.

Geymsla í kjallara (6,3 fm) með hillum.

Vesturhlið hússins var múrviðgerð og máluð og svalir múrviðgerðar og stækkaðar, fyrir ca 14 árum og á sama tíma voru gluggar endurnýjaðir. Sameign mjög snyrtileg, stigagangur var málaður og teppalagður fyrir ca 8 árum. Lóð snyrtileg og fjöldi bílastæða við húsið.

Húsgjöld eignar í húsfélagið Gnoðarvogur 16 eru 18.840 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.

Húsgjöld eignar í húsfélagið Gnoðarvogur 14-18 eru 14.475 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, umhirða lóðar og framkvæmdasjóður.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Kort af Gnoðarvogur 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu