HÚSASJÁ

Ljósheimar 22

02-0803 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

72 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1963

Byggingarár

5183 m²

Lóð

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Geymsla



61 dagar á sölu

sell

62.500.000 kr

865.651 kr/m²

Hrafnkell Pálmi lgf. kynnir þessa björtu og vel skipulögðu þriggja herbergja íbúð á 8. (næst efstu) hæð.

Íbúðin er með flottu útsýni og gluggar til suðurs og vesturs.

Eignin er laus við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

Nánari lýsing:

Anddyrið er flísalagt með stórum skápum með miklu geymsluplássi. Opið inn í stofuna og eldhúsið.

Stofan er opin og björt með parket á gólfi og góðum glugga til suðurs með flottu útsýni.

Eldhúsið er rúmgott með parket á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi og vinnurrými. Flísar milli borðs og skápa. Rými fyrir eldhúskrók undir glugga. Ofn í góðri vinnuhæð. Útgengt á svalirnar til vesturs.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu og sturtuklefa. Möguleiki á að hafa litla þvottavél í innréttingu (var áður).

Svefnherbergi I er inn af stofunni. Með parket á gólfi, opnum hillum og fatskáp. Góður gluggi til vesturs.

Svefnherbergi II er inn af eldhúsinu. Með parket á gólfi, fatskáp og góðum glugga til vesturs.

Svalirnar eru skjólsælar og snúa til vesturs með flottu útsýni.

Geymslan er á jarðhæð og 3,4fm. að stærð.

Þvottaaðsta er í sameign á jarðhæð.

Hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.

Mynddyrasími er í húsinu.

Vel rekið húsfélag og sameignin mjög snyrtileg.

Rafhleðslustöðvar á bílastæði.

Ljósheimar 22, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 08-03, fastanúmer 202-2279 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Ljósheimar 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-2279, birt stærð 72.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Ljósheimar 22

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð