Ljósheimar 6
02-0802 · 104 Reykjavík



27 dagar á sölu
63.900.000 kr
1.198.874 kr/m²
Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Ljósheimar 6, 104 Reykjavík. Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 53,3 fm, 2ja herbergja íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi á frábærum stað í grónu hverfi í Reykjavík. Stutt í alla helstu þjónustu. Glæsibær, Skeifan og nágrenni með fallegum gönguleiðum í Laugardalnum.
***Að sögn seljanda var íbúðin öll tekin í gegn haustið 2021. Búið að skipta út öll rafmagninu, nýjar vatn og skólplagnir eru í eldhúsi og baðherbergi, búið að koma fyrir tengi fyrir þvottavél innan íbúðar, nýjar innréttingar og gólfefni eru ásamt nýjum tækjum (ofn, örbylgjuofn, eldavél, vaskur)***
Forstofa / anddyri er með parketi á gólfi og skápum
Stofan er björt og með parketi á gólfi með útgengi út á vestursvalir. Glæsilegt útsýni úr stofu og af svölum,
Eldhúsið er mjög smekklegt með parketi á gólfi með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðum ísskáp, frysti og örbylgjuofni.
Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, steyptri sturtu með glervegg.
Svefnherbergið er nokkuð rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Í sameign er sérgeymsla, ásamt sameiginlegum rýmum.
Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















