HÚSASJÁ

Ljósheimar 6

02-0501 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

105 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1958

Byggingarár

4348 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



138 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

780.744 kr/m²

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Ljósheima 6 - fjögurra herbergja 104,9 m2 íbúð ásamt bílskúr. Eignin er á fimmtu hæð í lyftublokk.

Heildarfermetrafjöldi eignarinnr er. 104,9 m2 þar af er geymsla 5,4 m2. Bílskúrinn er 25,0 m2

** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934**

** Eigendur skoða einnig að selja íbúðina án bílskúrs**

** Bílskúr

** Tvennar svalir

** Lyfta

** Þrjú svefnherbergi

** Fasteignamat ársins 2026 fyrir íbúð og bílskúr er kr 86.390.000,-

Skipulag: Anddyri, eldhús, stofa, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, tvennar svalir, bílskúr, sér geymsla í sameign, sameiginlegt þvottahús, vagna og hjólageymsla.

Nánari lýsing: Komið er inní rúmgott anddyri með fatahengi. Eldhús með snyrtilegri ljósri innréttingu, skápar ofan og neðan borðplötu, borðkrókur er í eldhúsi sem rúmar eldhúsborð og stóla. Tengi er fyrir þvottavél í eldhúsinu. Stofa og borðstofa er rúmgóð og þaðan er útgengi á svalir með góðu útsýni, harðparket er á gólfi. Baðherbergi hefur verið endurnýjað flísalagt á gólfi og veggjum, upphengt salerni, flísalögð sturta, eikarinnrétting undir vaski og spegill fyrir ofan, opnanlegt fag er á baðherberginu. Á herbergisgangi er fataskápur, svefnherbergin eru þrjú öll með harðparketi á gólfi, hjónaherbergi með fataskáp og útgengt út á svalir.

Annað: Bílskúrinn er í enda bílskúrslengju sem stendur til móts við húsið. Sér geymsla er í sameign, einnig vagna og hjólageymsla.

Rúmgóð fjögurra herbergja fjölskylduíbúð ásamt bílskúr, stutt er í alla helstu þjónustu sem og falleg göngu og útivistarsvæði í Laugardalnum.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Ljósheimar 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24
Ljósheimar 6, 02-0501 | Húsasjá