Ljósheimar 4
02-0504 · 104 Reykjavík



11 dagar á sölu
69.900.000 kr
644.834 kr/m²
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 3-4 herbergja 108,4 fm. íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi við Ljósheima 4, Reykjavík. Íbúðin er skráð 102,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða borðstofu og stofu, tvennar svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla 5,8 fm. er staðsett í sameign. Gott húsfélag og virkt samstarf.
Íbúðin er laus við kaupsamning / eftir samkomulagi.
Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, heilsugæslu, skóla og verslanir. Jafnframt eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í Laugardalnum. Þetta er vel staðsett eign, björt og með fallegu útsýni.
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is
Nánari lýsing:
Góð aðkoma er að húsinu, hitalögn er í stétt fyrir framan. Húsið er klætt að utan, sameign snyrtileg og nýleg lyfta.
Forstofa er með fataskáp, parket á gólfum. Rúmgott forstofuhol sem tengir saman helstu vistarverur. Nýleg brunavarnarhurð er inn í íbúð.
Eldhús er með eldri innréttingu og góðum borðkrók. Stór og bjartur opnanlegur gluggi, korkur á gólfum.
Borðstofa og stofa er í einstaklega björtu og rúmgóðu rými, parket á gólfum. Úr stofu er útgengt út á svalir til vesturs um 7,3 fm. Mjög fallegt útsýni er úr alrými og stofu.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fataskápum, parket á gólfum. Úr hjónaherbergi er gengið út á 3,9 fm. svalir til austurs. Barnaherbergið er bjart með gluggum til vesturs, fataskáp og parket á gólfum. Á svefnherbergisgangi eru góðir fataskápar.
Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið (skv. eldri teikningum) með því að setja upp vegg í stofu.
Baðherbergi var endurnýjað 2024. Skipt var um frárennslis- og vatnslagnir, sett ný vaskinnrétting, salerni, gólfdúkur og hurð. Sturtuklefi er nýlegur. Góður opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla íbúðar 5,8 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu með góðu aðgengi að utan.
Þvottahús er sameiginlegt, staðsett í sameign með þvottavél og þurrkara fyrir íbúa í eigu húsfélags. Stórt þurrkherbergi er fyrir innan.
Bílastæði eru sameiginleg á lóð, nokkur bílastæði eru einnig við enda sunnanmegin þar sem hverfishleðsla er á vegum ON.
Garður er einnig sameignlegur, stór og gróinn.
Viðhald og endurbætur síðustu ára:
2024 var skipt um skólp og vatnslagnir vinstra megin í stigaganginum, þar með talið í þessari íbúð. Skipt var einnig um gler að hluta í sameign og gluggar málaðir.
2004-2005 voru framkvæmdir á skólpi, frárennsli og dren. Einnig var skipt um rafmagnstöflu í sameign.
1998-2000 var húsið klætt að utan og farið í þakviðgerðir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna































