HÚSASJÁ

Álfheimar 31

01-0002 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

70 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1960

Byggingarár

742 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



14 dagar á sölu

sell

61.900.000 kr

890.647 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu glæsilega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð með sérinngangi á eftirsóttum stað í Álfheimunum, Reykjavík, á hornlóð við Glaðheima. Samkvæmt HMS er eignin 69,50 fermetrar. Um er að ræða afar vel staðsetta eign í litlu og snyrtilegu fjölbýli í fjölskulduvænu hverfi.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð forstofa. Sérinngangur.

Stofa: Björt og rúmgóð stofa með vínyl parketi. Rýmið er bjart og rúmgott. Opið er á milli eldhúss og stofu.

Eldhús (endurnýjað 2023): Nýtt eldhús með öllum tækjum.

AEG bökunarofn.

AEG Spanhelluborð.

Nýr innbyggður ísskápur.

Ný innbyggð uppþvottavél.

Ný borðplata, nýr vaskur og endurnýjað frárennsli.

Fræst fyrir nýju neysluvatni og tengt við forhitara.

Baðherbergi (endurnýjað): Flísalagt með nýlegum: innréttingum, baðkari, baðtækjum, vask og salerni. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og forhitari settur upp.

Svefnherbergi: Herbergi með nýjum fataskáp og parketi.

Hol / aukarými: Hol sem nýtist vel sem skrifstofa eða vinnuaðstaða.

Geymsla innan íbúðar: Parketlögð, sparsluð og máluð. Getur nýst sem skrifstofa eða geymsla.

Úr geymslu er gengið inn í sameign þar sem er rúmgott þvottahús, hjólageymsla og salerni.

Endurbætur síðustu ár:

- Rafmagn endurnýjað (vírar, rofar og tenglar).

- Sér tafla fyrir eldhús.

- Nýtt parket á íbúð og geymslu.

- Allir veggir sparslaðir og málaðir (utan baðs).

- Skipt um gler í gluggum (og baðherbergisglugga).

- Klóak endurnýjað úr íbúð og út fyrir hús.

- 2 milliveggir teknir niður og skipulagi breytt.

- Frárennsli og neysluvatn endurnýjað í eldhúsi.

Mikið hefur verið lagt í eignina og hún er í mjög góðu ástandi.

Húsið og staðsetning: Sameiginlegur pallur og falleg lóð. Frábær staðsetning í göngufæri við: Leik- og grunnskóla, Laugardal, Glæsibæ, Álfheimakjarna, Skeifuna ofl.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Álfheimar 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu