HÚSASJÁ

Glaðheimar 10

01-0001 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

95 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1961

Byggingarár

955 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



22 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

830.526 kr/m²

LIND fasteignasala og Rútur Örn löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja 95 fm. íbúð á jarðhæð við Glaðheima 10 í Reykjavík.

Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð með 2 stórum svefnherbergjum, opnu alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og bjartri stofu þar sem útgengt er út á sólpall sem snýr í suður. Af sólpallinum er hægt að ganga út í stóran og vel hirtan garð sem snýr í suður og er afar skjólsæll. Í garðinum blómstra yfir 30 plöntutegundir á mismunandi árstímum. Út af hjónaherbergi er gengt út á lítinn sólpall þar sem morgunsólar nýtur við á sumrin.

Íbúðin er staðsett í afar fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu s.s. leik- og grunnskóla, verslanir, afþreyingu og eina af perlum höfuðborgarsvæðisins, Laugardalinn. Um er að ræða umferðalétta götu, sem er botnlangi og er leikvöllur við enda botnlangans, sem kallaður er Andarólo.

Anddyri // Forstofa, er ekki inni í skráðum fermetrum og telst til sameignar, en nýtist aðallega íbúðinni en aðrir íbúar hafa aðgang að þvottahúsi og geymslum í gegnum sameiginlegan stigagang. Íbúðinni fylgja 2 geymslur, önnur þeirra er 2.4 fm og er inn í skráðum fermetrum en hin geymslan er ekki inn í skráðum fermetrum. Í sameign er að finna tvær hjóla og vagnageymslur, ásamt því að á hæðinni er sameiginlegt þvottahús með öðrum íbúðum. Fjórar íbúðir eru í húsinu.

Nánari lýsing:

Eldhús/ borðstofa: Vönduð innrétting með ofni í góðri vinnuhæð, innbyggðum kæliskáp og uppþvottavél og spanhelluborði. Harðparket á gólfum og gluggar í suður

Stofa: Bjart opið rými, harðparket á gólfi og útgengt á stóran sólpall sem snýr í suður. Gluggar snúa í suður og austur.

Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott herbergi með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi, gluggi í norður og austur og útgengt út á sólpall þar sem morgunsólar nýtur við á sumrin.

Herbergi I: Góðir fataskápar, harðparket á gólfi og gluggi í suður.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari með sturtutækjum, speglaskáp og upphengdu salerni.

Breiður gangur tengir saman framangreind rými og þar er að finna rúmgóðan skáp og rými sem nýtist sem skrifstofukrókur.

Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta og ber þar helst að nefna:

2017: Skipt um gólfefni og eldhús endurnýjað.

2023: Ný hurð á baðherbergi, settur upp speglaskápur á baðherbergi, klósett og klósettkassi endurnýjaður

2024: Borað fyrir innfelldri viftu inn á baðherbergi, ný svalahurð sett í hjólaherbergi og bætt við opnanlegu fagi í glugga í barnaherbergi. Herbergisveggur sem snýr að sameign einangraður fyrir betri hljóðvist.

Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum og ber þar helst að nefna:

2021: Geymsla útbúin í sameign, gólf flotað í sameign og skipt um hurð í sameign, ásamt viðeigandi múrviðgerðum

2022: Ofn settur í hjóla og vagnageymslu.

2023: Allt tréverk utan á húsinu málað.

2024: Skipt um glugga í hjónaherbergi og skipt um 2 glugga í sameign (þvottahús)

2025: Skipt um gler í syðri stofuglugga, húsið rakamælt og sprunguskoðað, fyllt í sprungur eftir þörfum, tröppur og stétt endursteyptar með hitalögn og sett niður ruslatunnuskýli.

Nánari upplýsingar veitir Rútur Örn Birgisson, löggiltur fasteignasali í s. 869-1031 eða í gegnum netfangið rutur@fastlind.is.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Glaðheimar 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38