HÚSASJÁ

Skipasund 80

01-0101 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
47 myndir

185 m²

Stærð

5

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1962

Byggingarár

630 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús



154 dagar á sölu

sell

122.900.000 kr

664.684 kr/m²

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Skipasund 80, 104 RVK.

Reisuleg sjö herbergja fjölskyldueign á tveimur hæðum sem hentar stórri fjölskyldu. Íbúðarrýmið er á tveimur efstu hæðunum en innangengt er niður stiga að geymslurými á jarðhæð, þar sem einnig er þvottahús og inngangur í nágrannaíbúðina á jarðhæð. Eigninni fylgir bílskúr og einkabílastæði á lóð.

Uppgefin heildarstærð er 184,9 fm, þar af er bílskúrinn 38,2 fm. Húsið var múrviðgert að utan og veggir málaðir árið 2025. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og skóla. Skipasund fyrir þá sem ekki vita í rólegu grónu hverfi, steinsnar frá stofnæðum höfuðborgarsvæðisins.

>>SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT HÉR

>>SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA HÉR

NÚVERANDI SKIPULAG:

Aðalhæð: Forstofa, hol, stigi, stofa, borðstofa, 1x herbergi (áður hluti af stofunni), eldhús, svalir með útgengi út í garð, gestasalerni. Stigi

Efri hæð: hol/stigapallur, gangur, 5 x herbergi, svalir. baðherbergi.

Kjallari: Stigi, útskotsgeymsla, geymsla. Hurð inn í sameign þar sem hin íbúðin gengur inn og sameiginlegt þvottahús.

NÁNARI LÝSING:

Gengið er upp tröppur á utanverðu húsinu að íbúð þar sem er sérinngangur.

Aðalhæð:

Forstofa: Útidyrahurð með gluggum á hurð sem veitir birtu inn. Skápur með viðarhurðum fyrir yfirhafnir. Hvítmálaður panill á veggjum, hitaveituofn.Parketdúkur.

Hol: Hol tengir saman öll rými hæðarinnar og þar er auk þess stigi upp og hurð með stiga niður á jarðhæð þar sem er geymsla og þvottahús og 2 útidyrahurð. Parketdúkur.

Eldhús: Stórt og rúmgott eldhús með gluggum til tveggja átta og nettum svölum með útgengi út í garð. Elddri viðarinnrétting sem U-laga með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. eldavél með spanhelluborði og stæði fyrir uppþvottavél. Ísskápsstæði sem rúmar amerískan ísskáp. Plastparket.

Herbergi I: Eitt herbergi er á hæðinni. Það var áður hluti af stofunni en úbúið síðar. Það er rúmgott með glugga sem snýr til norðurs, út að götu. Plastparket.

Stofa/borðstofa: Er L -laga með stórum glugga inn í garð og minni út að götu til norðurs. Parket. Býður upp á stækkun á kostnað herbergis I.

Gestasalerni: Hvítar flísar á vegg og mynstraðar gólfflísar, handlaug með skáp undir, gólffest salerni. Opnanlegur gluggi. Niðurfallsrör á vegg sem er ekki í notkun.

Efri hæð:

Stigi: Fallegur steyptur stigi liggur í sveig upp á efri hæðina. Hár gluggi veitir náttúrulega birtu. Eldra teppi á stiga sem þarfnast endurnýjunar.

Hol/gangur: Tengir saman öll rými efri hæðar. Teppi á gólfi.

Herbergi 2: Rúmgott með gluggum endilangt og svalahurð á einum vegg og einnig glugga á gafli húss. Góðar svalir með járnhandriði út frá herberginu. Þrefaldur skápur. Plastparket.

Herbergi 3: Tvöfaldur skápur, gluggi inn í garð, Parketdúkur.

Herbergi 4: Skrifstofa í dag, en herbergið er gengt herbergi 3, og snýr gluggi út að götu. Plastparket.

Herbergi 5: Innst á gangi. Tvöfaldur fataskápur. Gluggi inn að garði. Plastparket.

Herbergi 6: Innst á gangi. Tveir gluggar, að götu og á gafli hússins. Tvöfaldur fataskápur. Plastparket.

Baðherbergi: Flísalagðir veggir. Vegleg L-laga viðarinnrétting með miklu skápa og borðplássi með marmaraborðplötu. Speglar. Handlaug, Gólffest salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi. Korkur á gólfi.

Bílskúr:Stór og rúmgóður bílskúr með ýmsa möguleika.. Handdrifin hurð á bílskúr. Gluggar, Rafhleðslustöð er undanskilin fylgifé. Geymsluskúr í garði í eigu íbúðar.

Geymsla: Stigi er niður í geymslurými og er læst hurð fram á sameignargang þar sem þvottahús er.

Sameign: Gróinn garður með grasi, beðum og steinverönd. Þvottahús er í sameign og er staðsett á jarðhæð. Sameiginelgur inngangur á jarðhæð, sem íbúð niðri notar.

Allar nánari. upplýsingar veita:

Guðbjörg Helga löggiltur fasteignsali og viðskiptafræðingur í síma  897 7712, gudbjorg@remax.is

Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður í síma 822 5124, gylfi@remax.is

Kort af Skipasund 80

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð