Langholtsvegur 81
01-0001 · 104 Reykjavík



3 dagar á sölu
58.900.000 kr
845.050 kr/m²
LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: vel skipulagða og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara í vel viðhöldnu fjölbýli við Langholtsveg 81 í Reykjavík. Íbúðin er 69,7 fermetrar að stærð, rúmgóð með sérinngangi.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.
Eignin skiptist í, anddyri, hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og sér geymslu.
Harðparket er á gólfum í íbúð nema á baði og forstofu, þar eru vínyl flísar.
Sérinngangur, komið hol með fatahengi.
Eldhúsið er með nýlegri ljósri innréttingu.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum í kringum sturtu og vatnskassa, með upphengdu salerni, hvítri baðinnréttingu.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónherbergi með skápum og parketi á gólfi og minna herbergi með parketi á gólfi.
Sameiginlegt þvottahúsi er í sameign og er innangengt þangað úr íbúðinni.
Stór vel gróinn og skjólsæll sameiginlegur garður er á lóðinni.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



















