HÚSASJÁ

Laugarásvegur 47

01-0201 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

101 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

1428 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús



47 dagar á sölu

sell

98.900.000 kr

970.559 kr/m²

Hrafnkell Pálmi kynnir þessa björtu og vel skipulögðu fimm herbergja íbúð með miklu útsýni yfir Laugardalinn og góðum svölum til suð- vesturs.

Íbúðin er á 2. hæð með sérinngangi og er sérlega sjarmerandi og björt.

Sér garður og sér bílastæði fylgir íbúðinni. Hluti íbúðar er undir súð og því nýtanlegir fermetrar fleiri en birt skráning segir til um.

Draumastaðsetning þar sem stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, húsdýra- og fjölskyldugarðinn, heilsurækt, sund, heilsugæslu og skemmtilegar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir

Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is

Skoða video af eigninni: smella hér

Nánari lýsing:

Sérinngangur er í íbúðina og er á norð- austurhlið hússins. Gengið í gegnum garðinn sem fylgir íbúðinni.

Anddyrið er með flísum á gólfi, opnu fatahengi og stiga upp í íbúðina með nýlegu kókosteppi.

Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með fallegu viðarparketi á gólfi og með góðum gluggum til austurs og suðurs. Útgengt á svalirnar til suð- vesturs.

Eldhúsið er rúmgott og opið við stofuna með viðarparket á gólfi og góð innrétting með miklu skápaplássi og vinnurými. Opnar hillur, flísar við borð og eyja sem hægt er að sitja við. Gluggar til norð- austurs.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og góð innrétting. Gluggi með opnanlegu fagi.

Hol með parketi á gólfi og opnu fatahengi.

Gengið er upp stiga í herbergja álmu íbúðar. Kókosteppi á gólfi.

Svefnherbergi I er með parket á gólfi, fataskápum, gluggum til suð- vesturs og norð- austurs og opið rými sem nýtt hefur verið sem fatarými.

Svefnherbergi II er með parket á gólfi og gluggum til suð- vesturs með fallegu útsýni.

Svefnherbergi III er með parket á gólfi og glugga til norð- austurs.

Svalirnar ná endilangt yfir stofuna og snúa til suð- vesturs með útsýni yfir Laugardalinn.

Þvottahúsið er innan íbúðar, við hlið baðherbergis, með rými fyrir þvottavél og þurrkara.

Garðinum hefur verið skipt upp og er hver íbúð með sinn hluta til afnota. Garð hluti íbúðar er við norð- austurhlið hússins.

Geymsluskúr í garðinum.

Bílastæði fyrir framan húsið sem íbúðin nýtir.

Endurbætur:

Þak yfirfarið 2025

Nýjar rennur 2025

Nýtt teppi í stigum 2023

Nýtt gler í stofugluggum að hluta 2023

Drenið og skólpið hefur verið skolað og yfirfarið reglulega og síðast árið 2022

Eldhús endurnýjað 2021

Húsið var málað 2020

Góð eign á vinsælum stað í Laugardalnum.

Arkitekt hússins: Gísli Halldórsson.

Þrjár íbúðir eru í húsinu.

Húsið er steinsteypt, kjallari, hæð og ris. Byggt 1959.

Hlutfallstala í húsi er 24,79%.

Íbúð merkt 201.

Ath að búið er að sameina herbergi sem skv. meðfylgjandi grunnteikningu voru 2 herbergi áður.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,

Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

Laugarásvegur 47, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 202-0043 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Laugarásvegur 47 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-0043, birt stærð 101.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Laugarásvegur 47

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33