HÚSASJÁ

Laugateigur 6

01-0001 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

75 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1947

Byggingarár

686 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



42 dagar á sölu

sell

71.500.000 kr

952.064 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna skemmtilega, bjarta og mikið uppgerða þriggja herbergja íbúð í kjallara við Laugateig 6. Eignin skiptist í anddyri, eldhús og stofu sem mynda stórt alrými þar sem útgengt er út í fallegan garð, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hægt er að ganga í það beint úr íbúðinni. Húsið hefur fengið mikið viðhald að utan og er staðsett innarlega í botnlanga. Mjög fjölskylduvænn og fallegur garður.

Bókið skoðun í síma 866-1763 eða á dagrun@betristofan.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Flotað gólf

Rúmgott hol með fatahengi, flotað gólf.

Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting frá 2019, dregið var fyrir nýtt rafmagn þar sem eldhús var fært um herbergi og úr eldhúsi var opnað inn í annað herbergi sem myndar stórt alrými fyrir eldhús og stofu. Sérsmíðuð hirlsa á milli herbergja. Flotað gólf. Gengið út í suðurgarð frá nýlegri tvöfaldri svalahurð úr stofu.

Herbergi I: Flotað gólf

Herbergi II: Parket á gólfi, nýlegur gluggi

Baðherbergi: Skipt var um handlaug og innréttingu 2019. Sturtuklefi og salerni endurnýjað 2015. Flísar á vegg að hluta. Flotað gólf

Geymsla: er í sameiginlegu rými, steypt gólf. 5 fm. Einnig er geymsluskápur á gangi sem er í eigu íbúðarinnar,

Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald síðustu árin og það er sterkt og gott húsfélag.

Viðhaldssaga hússins:

2009: Nýtt járn sett á þak

2009: Drenað

2011: Ný rafmagnstafla

2015: Húsið steinað

2015: Nýr gluggi á barnaherbergi

2023: Ný tvöföld svalahurð þar sem áður var gluggi

Frábær eign á þessum eftirsótta stað, innarlega í botnlanga. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslun.

Eignin Laugateigur 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-9196, birt stærð 75.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763, tölvupóstur: dagrun@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Laugateigur 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu