HÚSASJÁ

Laugateigur 3

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

161 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1948

Byggingarár

743 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



363 dagar á sölu

sell

117.900.000 kr

732.753 kr/m²

Landmark fasteignamiðlun kynnir:

Laugateigur 3, 160,9 fm 5 herb. hæð í fjórbýlishúsi, bílskúr þar af 30 fm. Mjög vel staðsett og falleg 5 herbergja íbúð á 2. hæð í góðu og mikið endurnýjuðu húsi á Teigunum. 3 svefnherbergi og 2 stofur. Suðursvalir. Nýlega búið steina húsið að utan, eldhús og baðherbergi nýlega endurnýjuð. Endurnýjaðar skolp og drenlagnir ásamt stofnlögnum. Rúmgóðar stofur. Einstaklega snyrtileg sameign. Húsið er neðsta hús í botnlangagötu, næg bílastæði. Sameiginlegur inngangur með risíbúð.  Bílskúrinn er mikið endurnýjaður með góðum raflögnum.  Hleðslustöð klár fyrir rafmagnsbíl.  Rafmagstafla í íbúð og sameign endurnýjaðar.  Auðvelt að breyta bílskúr í íbúð sem væri tilvalin leigueining.

Nánari upplýsingar veita:

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is

Sveinn Eyland lögg. fast.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 201-9108, nánar tiltekið eign merkt 02-01.  Ibúðin er skráð 122,8 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-02 er skráð 8,1 fm. Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-01-01 stærð bílskúrs er 30,0 fm. Birt heildarstærð 160,9 fm. Svalir eru til suðurs og eru skráðar 5,2 fm.  Fasteignamat 2026: 107.600.000. kr.

Nánari lýsing eignarinnar:

Sameiginleg stigagangur með risíbúð. Íbúðin er:  Hol með harðparketi og góðum skápum. Eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum, uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp, harðparket á gólfi.  Baðherbergi endurnýjað,flísalagt gólf og veggir, sturta flísalögð og aðskilin með öryggisgleri.  Upphengt salerni og falleg innrétting í kringum handlaug með speglaskáp yfir með innbyggðri lýsingu. Handklæðaofn, gluggi er á baðherbergi.

Lítið herbergi með góðum glugga, harðparket á gólfi. Rúmgott herbergi með harðparketi, gengið út á svalir úr svefnherbergi.  Stofa og borðstofa, afar rúmgóðar og bjartar með harðparketi á gólfi.  Þriðja er rúmgott svefnherbergi með skápum.  Harðparket á gólfi.

Innangengt í mjög snyrtilega sameign og þar er gott sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sínar vélar,  kyndiklefi og góð sérgeymsla fyrir íbúðina með hillum. Nýleg útihurð að stigagangi.

Raflagnir:  Raflagnir íbúðarinnar endurnýjuð. Rafmagnstafla í kjallara er endurnýjuð.

Grunnlagnir: Allar grunnlagnir endurnýjaðar m.a. skólp og drenlagnir, kaldavatnslögn, dælubrunnur með öryggisdælum, stofnlagnir heitaveitu endurnýjaðar.

Lóð og stéttar: Stéttar endurnýjaðar og hellulagðar með snjóbræðslulögnum. Vönduð útilýsing sett meðfram stétt með sjálfvirkum dagsbirturofa. Endurbætur gerðar á lóð undir handleiðslu garðarkitekts. Girðing og sorpgerði endurnýjað við innkeyrslu.

Umhverfi: Góðar göngu og hjólaleiðir í allar áttir m.a. rómað útivistarsvæði í Laugardalnum og að hverfstorgi við Laugalæk með matsölustöðum og þjónustu. Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Laugateigur 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu