Hofteigur 8
01-0001 · 105 Reykjavík



96 dagar á sölu
61.900.000 kr
833.109 kr/m²
Fasteignasalan TORG kynnir: FRÁBÆR STAÐSETNING – 2ja herbergja íbúð í kjallara með útgengi út í suðurgarð. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, baðherbergi, eldhús og tvö stór rými sem hvort um sig geta nýst sem stofa og/eða herbergi. Rennihurð á milli. Þvottahús í sameign á hæðinni. Stór og skjólgóður bakgarður í suður. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun í Laugardalnum og aðra þjónustu. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing: Íbúðin er í kjallara á reisulegu húsi byggðu 1948 sem var steinað að utan árið 2004. Um svipað leiti voru frárennslulagnir endurnýjaðar og drenað í kringum húsið.
Forstofa: Rúmgóð með djúpum fataskáp.
Eldhús: Með U-laga viðarinnréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Dökkar borðplötur og keramik helluborð. Lítið gluggaop milli eldhúss og stofu.
Stofa: Mjög rúmgóð (nú nýtt sem stofa og herbergi). Stór gluggi.
Svefnherbergi: Einnig mjög rúmgott með útgengi út í garð.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta með sturtuklefa og nýlegri innréttingu við vask.
Gólfefni: Í forstofu, eldhúsi, baðherbergi og hluta af stofu eru dökkar náttúruflísar. Viðarparket á forstofu og stofu.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús fyrir 3 af 4 íbúðum hússins eru á þessari hæð. Afar þægilegt fyrir íbúa þessarar íbúðar. Þá fylgir 2,1 fm sérgeymsla íbúðinni.
Mjög fín 2ja herbergja íbúð í afar vinsælu hverfi þaðan sem stutt er í velflesta þjónustu. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













