Hraunteigur 20
01-0201 · 105 Reykjavík



4 dagar á sölu
119.900.000 kr
760.787 kr/m²
Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja hæð á 2. hæð auk bílskúrs við Hraunteig 20 í Laugardalnum. Tvær stórar samliggjandi stofur, 3 rúmgóð svefnherbergi. Suðvestur svalir. Bílskúr viðtengdur húsinu. Sameiginlegur inngangur með rishæðinni.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 157,6 fm. og þar af er bílskúr 21,6 fm. og geymsla 4,2 fm.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í snyrtilegan stigagang sem er sameigninlegur með rishæð hússins.
Af stigapalli er komið inn í íbúðina
Hol mjög rúmgott með fatahengi og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi, bjartar og stórar með parketi á gólfi. Úr annarri stofunni er útgengt út á suð/vestur svalir.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, ofn og eldhúskrókur. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri vaskinnréttingu, upphengdu salerni og glugga. Flísar á veggjum og gólfi.
Bílskúr er tengdur við húsið með rafmagni en þarfnast standsetningar
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins 4,2 fm.
Snyrtileg sameign með sameiginlegu þvottaherbergi í kjallara þar sem hver íbúð er með sitt tengi.
Skipt hefur verið um alla glugga íbúðarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















