Skipasund 50
01-0101 · 104 Reykjavík



33 dagar á sölu
67.900.000 kr
888.743 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Fallega þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í tvíbýli við Skipasund 50, 104 Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun og helstu þjónustu.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang og þaðan beint inn í íbúðina.
Komið er inn í parketlagt miðrými sem tengir saman helstu rými eignarinnar.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu rúmgóðu samliggjandi rými. Nýleg grá innrétting með góðu skápaplássi. Vönduð tæki, spanhelluborð, bakaraofn og innbyggð uppþvottavél. Tvöfaldur ísskápur fylgir með.
Hjónaherbergið er með nýlegum fataskápum.
Herbergi II er rúmgott og innaf því er þvottahús en hægt væri að nýta rýmið einnig sem fataherbergi eða geymslu. Úr þvottahúsi er aðgengi að skriðkjallara með miklu geymsluplássi. Útihurð úr þvottahúsi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað og er flísalagt. Vönduð innrétting með skúffum og vaski, speglaskáp þar fyrir ofan. Rúmgóður sturtuklefi, handklæðaofni og upphengt salerni.
Geymsla er undir stiga innan íbúðar. Að auki fylgir eigninni geymsluskúr í garði.
Nýlegar endurbætur :
2021 -Rafmagn, ofnalagnir og neysluvatnslagnir
2021- Eldhús og baðherbergi
2012 -Gluggar og gler í íbúð ásamt útidyrahurð hússins
2019 - Þak (járn og pappi)
Skólplögn við hús hefur verið fóðruð.
Vel staðsett eign á eftirsóttum stað við Laugardalinn þar sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, verslun og þjónustu og allt sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veita :
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Alfreð Valencia aðstoðarmaður fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

























