HÚSASJÁ

Langholtsvegur 59

01-0101 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

169 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1943

Byggingarár

540 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



492 dagar á sölu

sell

127.000.000 kr

751.035 kr/m²

Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Einbýlishús á góðum stað við Langholtsveg. Heildarstærð  169,1 m², bílskúr 41,5 m² og hús 127,6 m² Stór sólpallur ( ca. 90 m²) með heitum og köldum pottum. Mikið endurnýjuð eign.

Efri hæð:

Forstofa, flísalögð og hiti í gólfi.

Stofa og borðstofa í samliggjandi rými með parketlögðu gólfi og gluggum á þrjá vegu.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu sem endurnýjuð var fyrir nokkrum árum, borðkrókur í enda. Gegnt út pall frá eldhúsi.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, innrétting sturtuklefi,upphengt salerni og opnanlegur gluggi

Miðsvæðis á hæðinni er parketlagður stigi á neðri hæð með fallegu glerhandrið umhverfið stigaopið.

Neðri hæð:

Parketlagt hol miðsvæðis

Baðherbergi með flísalögðum veggjum og opnanlegum glugga.

Herbergi 1, rúmgott hjónaherbergi með parketlögðu gólfi.

Herbergi 2, gott barnaherbergi með parketi á gólfi

Herbergi 3, gott barnaherbergi með parketi á gólfi

Þvottahús með glugga er á neðri hæðinni

Sólpallur, stór ( ca. 90 m²) sólpallur er aftan við húsið, er hann bæði með heitum potti og köldum potti og skjólgirðingum. Tröppur eru niður í garðinn frá pallinum.

Bílskúr, 41,5 m² frístandandi bílskúr og er fremri hlutinn nýttur sem geymsla og innréttuð tvö herbergi með sérinngangi í innri enda hans.

Endurbætur

Eignin hefur verið töluvert endurbætt og er búið að endurnýja glugga og gler í húsinu ásamt útihurðum. Endurnýjað  þakjárn á húsi og bílskúr og klæða bílskúrinn ásamt nýrri innkeyrsluhurð.. Einnig er búið að taka eldhúsið og baðherbergið í gegn. Parket á gólfi endurnýjað. Ofnalagnir lagðar og ofnar endurnýjaðir. Endurnýjuð rafmagnstafla, tenglar og rofar. Stór sólpallur smíðaður og settur heitur og kaldur pottur.

Þetta er vel skipulagt hús sem búið er að endurnýja mikið á síðustu árum. Einstök útiaðstaða á stórum sólpöllum í bakgarði. Frábær staðsetning miðsvæðis.

Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?

Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Kort af Langholtsvegur 59

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39