HÚSASJÁ

Efstasund 31

01-0101 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

269 m²

Stærð

9

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1959

Byggingarár

540 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



65 dagar á sölu

sell

199.000.000 kr

739.227 kr/m²

Kjörein fasteignasala kynnir: Efstasund 31,  fallegt og mikið endurnýjað 269,2 fm einbýlishús með auka íbúð á þessum vinsæla stað í Sundunum. Húsið er tvílyft með kjallara og rúmgóðum bílskúr. Hellulögð aðkoma að húsi og stór bílskúr. Stór og gróinn garður með mikla möguleika. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð og endurbætt. Húsið skiptist í aðalhæð: forstofu, gangur, þvottahús, baðherbergi, tvennar stofu og eldhús. Efri hæð.  sjónvarpsrými, fjögur svefnherbergi og salerni. Kjallari: stúdío íbúð, og geymslur. Stór og góður bílskúr með gluggum.

Nánari lýsing aðalhæð. Komið er inn í forstofu, og inn af henni er gangur. Stórt og gott þvottahús með góðum nýlegum innréttingum. Baðherbergið er nýlega endurnýjað með fallegum flísum á veggjum og gólfi. "walk-in" sturta með innbyggðum tækjum og baðkar. Tvær stórar samliggjandi stofu og eldhús sem opið er inn í stofu. Ný eldhúsinnrétting og eyja. Gengið er út í garð frá stofu. Gólfin á hæðinni er nýlega flotuð.

Efri hæð: Rúmgott opið rými sem nýtt er sem sjónvarpsstofa,. Fjögur svefnherbergi þar af eitt stórt sem er tvö á teikningu. Svalir eru út frá einu svefnherberginu og stórar svalir út frá sjónvarpsstofu sem ná meðfram allri bakhlið hússins og hluta til á tvær aðrar hliðar.

Kjallari: gengið er niður í kjallara frá þvottahúsi , þar var áður þvottahús sem er nýtt í dag búr/geymsla ,  búið að útbúa líkamsræktaraðstöðu í einu rýminu.  Einnig lagnarými og lokuð geymsla. Lofthæð í kjallara er um 190-200 cm

Stúdíóíbúð í kjallara: komið er inn í litla forstofu. Gott svefnherbergi og ágætis bað með þvottaaðstöðu. Eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu og borðkrók.

Bílskúr: 32,4 fm með rafmagni og góðum gluggum sem vísa út í garð. Undir bílskúr er svo kjallari/geymslurými.

Lóðin: Lóðin er mjög falleg og skjólsæl. Öll aðkoma að húsinu er hellulögð og innkeyrsla að bílskúr líka. Snjóbræðsla er í hellulögn. Afgirtur sólpallur er við suðvestur horn hússins. Trjágróður og grasbalar eru á baklóð og sunnanmegin við húsið.

Helstu endurbætur:

2025 Þvottahús endurnýjað með góðri innréttingu

2025 Rennihurð sett út í garð

2025 Timburverk málað

2025 Garður girtur með góðum skjólvegg

2025 3-fasa rafmagn sett í húsið og hleðslustöð fyrir rafbíla sett upp

2024 rafmagn víðsvegar endurnýjað og ný tafla sett upp

2024 Eldhús endurnýjað að fullu með nýrri innréttingu og tækjum

2024 Hús málað

2024 Baðherbergi á aðalhæð tekið í gegn með sturtu og baðkari

2024 Gólf á aðalhæð flotað, lakkað og hiti settur í gólf

2024 Svalahurð á efri hæð endurnýjuð

2022 Kjallari lagfærður og allur málaður.

2022 skorsteinn klæddur með bikki og hattur settur

2021 bílskúr klæddur og skipt um þakjárn og rennu

2021 Sett ný hurð í kjallara bakatil og á baksvalir efri hæðar.

2021 var skipt um þakklæðningu á húsinu og timburklæðningu kvista á efri hæð að frama og á bakhlið.

2019 snjóbærðslukerfi tengt með varmaskiptum, lokað kerfi.

2010 var dren endurnýjað að hluta nema við suðversturhlið hússins í kringum sólpall

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.

Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is

Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is

Kort af Efstasund 31

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð