HÚSASJÁ

Sæviðarsund 7

01-0102 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

112 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1967

Byggingarár

2259 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



77 dagar á sölu

sell

83.500.000 kr

745.536 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og rúmgóða 4ra herbergja íbúð ásamt bílskúr á frábærum stað í Vogunum, við Sæviðarsund 7, fyrstu hæð.

Bókið skoðun í hjá Hallgrími í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is eða Kristjáni á netfanginu kristjan@trausti.is.

Eignin er skráð samkvæmt HMS 112 fm, þar af er bílskúr 27,8 fm.

Nánar um eignina:

Stigagangur er snyrtilegur með teppum á gólfi

Hol með góðu skápaplássi, parket á gólfi

Stofa er rúmgóð og björt með góðum gluggum og parket á gólfi. Gengið er út á stórar vestursvalir og er stigi niður í garð af svölunum.

Eldhús með snyrtilegri eldri innréttingu. Dúkur á gólfi.

Þrjú svefnherbergi og baðherbergi eru í gangi innaf stofu.

Hjónaherbergi er með góðum skáp og parket á gólfi.

Barnaherbergi með parketi á gólfi

Svefnherbergi með góðum skáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, nýlegar flísar. Baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél.

Bílskúr er 27,8 fm með geymslu innaf í enda hans.

Sameiginlegt þvottahús er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu og snyrtingu.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Óli Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson hdl og löggiltur fasteignasali á netfanginu kristjan@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Sæviðarsund 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Sæviðarsund 7, 01-0102 | Húsasjá