HÚSASJÁ

Kambsvegur 21

01-0201 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

184 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1950

Byggingarár

517 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



254 dagar á sölu

sell

129.900.000 kr

704.447 kr/m²

Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna virkilega fallega 184,4 fm hæð í tvíbýlishúsi að Kambsvegi 21, 104 Reykjavík. Eignin skiptist í 144,9 fm hæð og 39,5 fm bílskúr með sér stæði fyrir framan en allt annað innan lóðar er í sameign. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Þróttar og íþróttaaðstöðu Ármanns og allt það sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða.

Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.

Skoðaðu eignina hér í 3D

Nánari lýsing:

Komið er í flísalagða forstofu með teppalögðum stiga upp á aðalhæð eignarinnar. Frá forstofu er aðgengi inn í sameiginlegt þvottahús. Þegar komið er upp stigann á aðalhæð hússins er komið inn í rúmgott nýlega standsett eldhús og borðstofu, þó með eldri kork á gólfi sem er kominn tími á að skipta um og flotað að hluta. Eldhúsinnréttingin er hvít með hvítum bekkjum. Span helluborð og innbyggð uppþvottavél ásamt ofnum í vinnuhæð og innbyggðum vínkæli. Gert er ráð fyrir breiðum ísskáp. Frá borðstofu er gengið niður á neðri pall þar sem er parketlögð stofa með útgengt út á svalir. Rými sem í dag er notað sem lítil skrifstofa og svo svefnherbergi sem er notað sem hjónaherbergi. Frá borðstofu er sömuleiðis gengið inn í sjónvarpsherbergi með dúk á gólf, þar inn af eru svo barnaherbergin ásamt baðherbergi. Barnaherbergin eru þrjú, tvö með parketi á gólfi og eitt minna með eldri dúk á gólfi. Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, baðkari og sér sturtu.

Bílskúrinn er mjög rúmgóður og sérstæður frá húsinu. Heitt og kalt vatn ásamt nýlegum ofnum (2024).

Eldhúsið var endurnýjað árið 2023

Skólplagnir voru myndaðar 2023 og voru þá í lagi.

Forstofa var endurnýjuð árið 2019.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Kambsvegur 21

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27