HÚSASJÁ

Hjallavegur 8

01-0102 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

198 m²

Stærð

4

Herbergi

5

Svefnherbergi

1955

Byggingarár

513 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



26 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

731.449 kr/m²

Miðbær fasteignasala kynnir:  Hjallavegur 8, 104 Reykjavík, 3ja íbúða eign, jarðhæð 2ja herberja íbúð, 3ja herbergja íbúð á  miðhæð /ris og studioibúð í bílskúr.

Eignin er samtals 198,1 fm, þar af 40 fm sérstæður bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð.

Vel staðsett eign miðsvæðis á rólegum stað í næsta nágrenni við Laugardalinn.

Mikið endurnýjuð að innan, eldhúsinnnréttingar , gólfefni,  járn á þaki ásamt að skipt var um glugga á norðurhlið hússins. Eignirnar er allar í leigu með mjög góðu leigutekjum. Eignin er vel staðsett á rólegum stað í nágrenni við Laugardalinn.

Nánari lýsing:

Jarðhæð : alls 54,5 fm.

Forstofa er rúmgóð með fataskáp. Eldhús, borð- og setustofa eru í opnu rými. Snyrtilegt baðherbergi með sturtu. Tvö svefnherbergi og geymsla. Sér inngangur.

Hæð og ris: alls 103,3 fm.

Komið er inn í flísalagða forstofu, þaðan sem gengið er inn í opið bjart alrými sem tengir saman eldhús, borð- og setustofu. Lítið fataherbergi er innaf forstofunni. Gengið er upp á rishæð frá stofu þar sem eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi með baðkari og sturtuhaus. Geymsluloft er yfir hluta af íbúðinni sem er ekki inn í fermetratölu. Snyrtilegt þvottaherbergi er á jarðhæð með útgengi í bakgarð. Sér inngangur. Sér þvottahús í kjallara fyrir hæðina. Geymsla er á háalofti og miðhæðinni.

Bílskúr/ íbúð: alls 40,3 fm. (skráð sem vinnuskúr).

Íbúðin er standsett með vönduðum frágangi. Eldhúskrókur, stofa og svefnherbergi er í opnu rými. Baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa,innréttingu og glugga.

Fasteignin hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald.

Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar sem og drenlögn. Fyrir framan húsið er nýlega hellulagt plan sem einungis á eftir að tengja hita í.

Að sögn seljanda hafa raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar ásamt frárennslislögnum og drenlögnum. Hluti af gluggum í húsinu endurnýjaðir. Fyrir framan húsið er nýlega hellulagt plan sem einungis á eftir að tengja hita í. V

Gott tækifæri að eignast hús með þremur leiguíbúðum. Mjög góðar leigutekjur.

Staðsetning og nærumhverfi:

Eignin er staðsett á vinsælum fjölskylduvænum stað skammt frá Laugardalnum og í göngufæri frá miðbænum. Stutt er í alla helstu þjónustu skóla, leikskóla og stofnbrautir.

Góð aðkoma er að húsinu. Húsið var allt tekið í gegn að utan fyrir nokkrum árum, að sögn seljanda var eignin töluverð endurnýjuð.

Kristbjörn Sigurðsson löggiltur fasteignasali  sími 6923000 ks@midbaer.is

Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.

Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Hjallavegur 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30