Kambsvegur 5
01-0201 · 104 Reykjavík



3 dagar á sölu
69.900.000 kr
923.382 kr/m²
LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali kynna Kambsveg 5
Falleg rishæð á vinsælum stað í Reykjavík. Hátt til lofts og útsýni til vesturs og norðurs, meðal annars að Esju og til sjávar.
Eignin skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og forstofu. Hluti stofu/eldhúss og svefnherbergja er undir súð og er því gólfflötur töluvert stærri en uppgefnir fermetrar.
Nánari lýsing eignar:
· Forstofa er flísalögð með hita í gólfi, glugga og fatahengi.
· Eldhús hvít innrétting með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Helluborð og háfur ásamt nýlegum ofni. Innbyggður geymsluskápur/búr er innan eldhúss. Parket á gólfi og rúmgóður borðkrókur.
· Stofa/borðstofa bjart og opið rými, parketlagt, hátt til lofts með glugga til suðurs og þakglugga við borðstofu.
· Hjónaherbergi er bjart, parketlagt og mjög rúmgott með góðum fataskáp. Gluggi til suðurs.
· Barnaherbergi er parketlagt með glugga til norðurs með útsýni að Esju.
· Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum með baðkari/sturtu og upphengdu salerni. Rúmgóð baðinnrétting með skápum undir borði og handlaug á borði. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu og veggskápur á móti innréttingu. Hiti er í gólfi. Tenging er fyrir þvottavél og geymslurými yfir lofti baðherbergis.
· Athugið að innra skipulagi eignar hefur verið breytt frá samþykktum teikningum
Lóð og geymsluskúr:
· Geymsluskúr (5–6 fm) er í garði og nýtist vel fyrir reiðhjól og garðhúsgögn. Skúrinn hefur verið í sérafnotum íbúðar.
· Sameiginlegur garður með palli og grasflöt.
Skólplagnir myndaðar 2016 og í lagi þá.
Tréverk í kringum stofugluggann til suðurs og trébretti fyrir neðan hann var endurnýjað árið 2025.
2025: nýjar borðplötur, nýr vaskur og krani, nýjar veggplötur og ný innbyggð uppþvottavél í eldhúsið.
Skipt um alla rafmagnstengla og rofa,ásamt því að setja upp ný loftljós svefnherbergjum og stofunni.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
























