HÚSASJÁ

Jökulgrunn 8

12-0101 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

112 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1991

Byggingarár

61319 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Þvottahús



24 dagar á sölu

sell

114.900.000 kr

1.030.493 kr/m²

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna fallegt 111,5 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Jökulgrunn 8 í Reykjavík.

Eignin er í raðhúsaþyrpingu fyrir 60 ára og eldri. Virkilega gott skipulag er á eigninni sem er opin og björt með mikilli lofthæð í alrými. Sérafnotareitur út frá stofu er einstaklega skjólsæll.

Góðu og reglulegu viðhaldi hefur verið sinnt af félagi húseigenda við Jökulgrunn á ytra byrði húsa og lóð og er öll aðkoma hin snyrtilegasta.

Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is

Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, svefnherbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 85,7 fm og bílskúr er 25,8 fm, samtals 111,5 fm.

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi.

Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, helluborði, gufugleypi, bakarofni í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók, parket á gólfi.

Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á skjólsæla verönd og garð sem er lokaður með trjágróðri.

Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, snyrtilegri baðinnréttingu og sturtu.

Hol er með fataskápum, parket á gólfi.

Þvottahús er á milligangi sem liggur að bílskúr, með tengi fyrir þvottavél, skolvaski og áföstum hillum.

Bílskúr er með góðri lofthæð og millilofti, rafdrifinni bílskúrshurð og flísum á gólfi. Fyrri eignandi lét útbúa lítið herbergi í bílskúrnum sem er upplagt fyrir barnabörnin en er annars auðvelt að fjarlægja.

Innkeyrsla er hellulögð.

Kort af Jökulgrunn 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29