HÚSASJÁ

Kleppsvegur 54

02-0201 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

98 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1956

Byggingarár

1342 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Þvottahús



417 dagar á sölu

sell

71.400.000 kr

731.557 kr/m²

Heima fasteignasala kynnir rúmgóða 4ra herb. íbúð á 2. hæð auk herb. í risi til útleigu. Nýlega hefur baðherbergi verið endurnýjað. Eignin hefur hlotið gott viðhalds að undanförnu. Nýlega endurnýjað allar kalda-og heitavatnslagnir í sameign ásamt rafmagnstöflu í sameign.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Aron M. Smárason í síma 8887282, eða á aron@heimaf.is

Komið er inn í forstofu með fataskáp. Harðparket er á gólfi inn á gang, herbergi,stofu og borðstofu. Á gangi er einnig fataskápur.

Eldhús er með viðarinnréttingu í U.Hvít eldavél, vifta og hvít uppþvottavél. Ísskápur getur fylgt. Borðkrókur. Flísar á gólfi.

Stofa er rúmgóð með útgengi út á svalir í suðvestur.

Baðherbergi er með glugga. Nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, hvít innrétting og handklæðaofn.

Hjónaherbergi rúmgott með endurnýjuðum fataskáp eftir heilum vegg.

Svefnherbergi 1 hefur nýlega endurnýjaðan fataskáp.

Svefnherbergi 2 hefur verið aðskilið frá stofunni með hurð sem hægt er að fjarlægja eða hafa opna.

Í sameign er sameiginlegt þvottahús með sértengi. Sérgeymsla í sameign.

Aukaherbergi í risi: 9,7 fm. Sameiginlegt salerni.

Sameiginlegur garður. Hér er um að ræða fallega endurnýjaða eign að hluta, vel staðsett þar sem stutt í alla þjónustu.

Eign hefur hlotið gott viðhald að undanförnu af fagaðilum.

- Gólefni skipt um næst svalahurð, viðgerð við svalahurð.

- Viðgerð í Eldhúsi.

- Skipt um glugga og gler í hjónaherbergi, viðgerð á gluggakistu.

- Skipt um glugga og gler í baðherbergi, viðgerð við glugga.

Nánari upplýsingar varðandi viðgerð verður í skjali sem fylgir.

Frábær staðsetning – 104 Reykjavík

Kleppsvegur 54 er staðsett í vinsælu og rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og verslanir. Laugardalur og miðbær eru í göngufæri með fjölbreyttum útivistarmöguleikum.

Góðar samgöngur eru á svæðinu og greið leið bæði í miðbæinn og út á helstu stofnbrautir. Hér sameinast rólegt íbúðahverfi og frábær aðstaða til daglegs lífs.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Kleppsvegur 54

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20