HÚSASJÁ

Laugalækur 20

06-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

250 m²

Stærð

8

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1980

Byggingarár

1763 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr



120 dagar á sölu

sell

224.500.000 kr

897.641 kr/m²

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Laugalækur 20 ,105 Reykjavík. Glæsilegt og afar vel staðsett 8 herbergja 250,1 m2 endaraðhús á eftirsóttum stað í Laugarnesinu. Bílskúr, tvennar svalir og skjólsæll garður sem snýr að suðri.

Nánar um eignina: Á fyrstu hæð hússins er anddyri með flísum á gólfi og fataskáp, hiti í gólfi. Hol með parketi á gólfi, gólfhiti og tvöfaldur skápur. Gestasalerni flísalagt hólf í gólf með gólfhita, upphengt salerni með innbyggðum kassa. Handlaug í steinplötu og stór spegill á vegg, innfelld lýsing í lofti og loftræsting. Borðstofa með parketi á gólfi á efri palli í stofu, opið niður í stofu. Stofa með parketi á gólfi, stórir gluggar og útgengi út á svalir þaðan sem hægt er að ganga niður í garð. Eldhús með flísum á gólfi og gólfhita. Sérsmíðuð innrétting á tveimur veggjum, skápar neðan steinplötu við glugga, vaskur felldur í borðplötu, stórt helluborð með kolasíu háfi fyrir ofan. Gólfsíðir skápar á vegg til móts við glugga, tveir ofnar í vinnuhæð, hólf fyrir tvöfaldan ísskáp og tveir búrskápar.

Á efri hæð hússins sem er með aukinni lofthæð er hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi, þaðan er hægt að ganga út á svalir með snjóbræðslu.  Fyrir framan hjónaherbergið er sjónvarpsstofa með parketi á gólfi. Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf með gólfhita. Tvöfaldur gólfsíður baðherbergisskápur, upphengt salerni með innbyggðum kassa. Stór “Walk in“ sturta með vönduðum innfelldum blöndunartækjum. Baðherbergisinnrétting neðan steinplötu, tvær handlaugar og stór spegill á vegg fyrir ofan, innfelld lýsing í lofi og loftræsting. Tvö barnaherbergi eru á hæðinni, parket á gólfum.

Í kjallara hússins eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, tvöfaldur fataskápur í öðru þeirra. Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi fyrir framan svefnherbergin. Salerni, flísalagt hólf í gólf með gólfhita. Upphengt salerni með innbyggðum kassa, innrétting undir steinplötu og stór spegill á vegg fyrir ofan, loftræsting. Heilsu-og baðrými flísalagt hólf í gólf með gólfhita. Hornbaðkar með nuddi, stór “Walk in“ sturta með glerskilrúmi og innfelldum blöndunartækjum. Saunaklefi og handlaug, loftræstikerfi. Sérinngangur er að kjallaranum, flísalagt anddyri og gangur með gólfhita, skápur.

Annað: Húsinu fylgir bílskúr í bílskúrslengju, merktur 01-0106, 25,3 m2. Svalir á fyrstu hæð eru með flísum á gólfi og útdraganlegri markísu. Frá svölunum er gengið út í skjólgóðan garð með lýsingu í grindverki.

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

Sjá einnig:

fastborg.is/

Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook

Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Laugalækur 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42