HÚSASJÁ

Laugarnesvegur 62

01-0302 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

87 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1985

Byggingarár

750 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



162 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

869.416 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og fallega 87,3 fm. 3ja herbergja íbúð á 3. hæð að Laugarnesvegi 62, 105 Reykjavík. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, forstofu/hol og geymslu þar sem tengi er fyrir þvottavél. Eldhús og baðherbergi var endurnýjað árið 2021. Parket á holi og stofu var endurnýjað árið 2025.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol er með rúmgóðum fataskápum og nýtt parket á gólfi.

Eldhús er nýlega uppgert með fallegri hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa og á gólfi.

Stofa er með nýtt parket á gólfi og útgengi á svalir.

Hjónaherbergi er með parket á gólfi.

Barnaherbergi er með parket á gólfi.

Baðherbergi er nýlega uppgert með hita í gólfi, baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja.

Geymsla/þvottahús er innangengt úr eldhúsi.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins.

Um er að ræða fallega íbúð á góðum stað í Laugarneshverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða á netfanginu katarzyna@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Laugarnesvegur 62

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20
Laugarnesvegur 62, 01-0302 | Húsasjá