HÚSASJÁ

Rauðalækur 59

01-0001 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

36 m²

Stærð

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1958

Byggingarár

697 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

49.500.000 kr

1.371.191 kr/m²

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Rauðalækur 59, 105 Reykjavík.  Mikið endurnýjuð íbúð á jarðhæð með sérinngangi á eftir sóttum stað í Laugarneshverfinu. Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Nánari um eigina: Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi merkt 00-01, birt stærð 36,1 m2. Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi. Að auki fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Á gólfum íbúðarinnar að undanskyldu baðherbergi er nýtt parket og er hiti lagður í gólf íbúðarinnar. Björt stofa með stórum glugga, inn af stofu er svefnherbergi. Ný eldhúsinnrétting með stórum vaski og svörtum blöndunartækjum. Helluborð í borðplötu og blástursbakaraofn, innbyggð uppþvottavél og hólf fyrir ísskáp. Baðherbergi með glugga sem er flísalagt hólf í gólf. Upphengt salerni með innbyggðum kassa, sturta og baðherbergisinnrétting undir handlaug.

Annað: Nýlega var lokið við að endurnýja íbúðina nánast frá grunni, ekki hefur verið búið í henni síðan. Snyrtileg aðkoma er að húsinu. Sameiginlegur garður, hellulögð verönd og snjóbræðsla í gönguleiðum. Yfirlit yfir framkvæmdir og viðhald : 2025 - íbúð endurnýjuð - skólplagnir endurnýjaðar og drenað, skipt um jarðveg, skipt út hellum í göngustíg og fyrir utan íbúð. Lagðar hitalagnir undir göngustíg og við dren, nýtt vatnsinntak frá veitum, nýtt torf á lóð að hluta til - 2024 - þak yfirfarið, þakplötur og eingangrun endurnýjaðar - 2023 - múrviðgerðir á húsi og gluggar endurnýjaðir.

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is

Sjá einnig:

fastborg.is/

Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook

Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Rauðalækur 59

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu