HÚSASJÁ

Kleppsvegur 32

04-0302 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

59 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1971

Byggingarár

3110 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



42 dagar á sölu

sell

59.800.000 kr

1.013.559 kr/m²

Valborg fasteignasala kynnir: Mjög björt og vel skipulögð 2ja herbergja útsýnisíbúð  að Kleppsvegi 32/gengið inn frá Brekkulæk. Íbúðin er endaíbúð á 3ju og efstu hæð með útsýni í vestur og suður.

Góð bílastæði við húsið. Hleðslustöðvar eru á lóð bak við blokkina sem íbúar hafa aðgang að.

Samkvæmt HMS er eignin 59 fm og er hún laus við kaupsamning.

Bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, viðskfr og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Íbúðin skiptist í stórt alrými, forstofu, stofu, borðstofu og eldhús með útgengi á vestur svalir, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Sameign er snyrtileg, teppi á stigagangi hafa nýlega verið endurnýjuð, stigagangur nýmálaður, nýlegt dyrasímakerfi í húsinu.

Mikil breyting  hefur verið gerð  á skipulagi íbúðarinnar. Opnað var á milli stofu/borðstofu og eldhús og svefnherbergi var gert í suðurhluta íbúðar í stað vesturs.

Frábær staðsetning  þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla, sundlaug kaffihús  og verslunarkjarna.

Nánari lýsing:

Forstofa: Innbyggðir ljósir skápar.

Eldhús: Ljós innrétting með eyju og tréplötu á borðum. Innbyggður ískápur og uppþvottavél. Hvítar flísar yfir borði. Þvottavél tengd í eldhúsi.

Stofa/borðstofa: Bjart opið rými.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með skáp.

Baðherbergi: Flísalagt með ljósum flísum. Hvít innrétting, baðkar með sturtu.

Geynsla: 4 fm geymsla í kjallara.

Sameign:

Þvottahús

Hjólageymsla

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Kleppsvegur 32

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21
Kleppsvegur 32, 04-0302 | Húsasjá