HÚSASJÁ

Laugarnesvegur 112

01-0304 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

91 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1963

Byggingarár

1071 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



103 dagar á sölu

sell

71.900.000 kr

788.377 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða útsýnisíbúð á þessum vinsæla stað í Laugarneshverfinu, gluggar á þrjá vegu og suður svalir.

Íbúðin er upprunnalega teiknuð og skipulögð sem fjögurra herbergja íbúð en er í dag uppsett sem þriggja herbergja íbúð.

Búið er að skipta um glugga og gler í íbúðinni.

Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, útivistarsvæði og stofnbrautir.

ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð er 86.6 fm merkt 01-03-04 og geymsla 4.6 fm er merkt 01-00-14, samtals 91.2 m2 að stærð.

Sameiginlegt þvottaherbergi í kjallara ásamt hjóla/vagnageymslu.

FÁÐU SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Nánari upplýsingar um eign:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

Guðrún Diljá lögg.fasteignasali gudrun@landmark.is

Eignin skiptist í:

Forstofu/hol, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í kjallara.

Sameiginlegt þvottaherbergi í kjallara og hjóla/vagnageymsla.

Nánari lýsing á eign:

Komið er inn í forstofu/hol og er fataskápur í enda á gangi.

Stofa og borðstofa er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu og er ægifagurt útsýni til vesturs yfir sundin úr stofu og til suðurs af svölum sem er útgengi á úr stofu.

Rúmgott eldhús með snyrtilegri eldri innréttingu með efri og neðri skápum og eru flísar á milli skápa að hluta, borðkrókur.

Innaf herbergjagangi eru tvö svefnherbergi og er góður fataskápur í hjónaherbergi.

Baðherbergi var endurnýjað fyrir einhverjum árum síðan og eru flísar á gólfi og flísaplötur á veggjum, handklæðaofn, baðkar með sturtuhengi og er gluggi á baðherbergi.

Sérgeymsla í kjallara.

Sameiginlegt þvottaherbergi þar sem að hver og einn getur verið með sína þvottavél og þurrkara og sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.

Gólfefni: Flísar, parket og plastparket á gólfum íbúðar.

*Öll sameign er mjög snyrtileg og eins húseign að utan.

*Búið er að skipta um glugga og gler í íbúð.

*Verið er að endurnýja niðurföll og yfirfara neysluvatnslagnir í sameiginlegu þvottaherbergi.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Laugarnesvegur 112

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28