HÚSASJÁ

Laugarnesvegur 104

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

113 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1956

Byggingarár

2618 m²

Lóð

Garður

Geymsla



42 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

797.693 kr/m²

FASTEIGNASALAN BORG kynnir í einkasölu:

Björt, rúmgóð og afar vel skipulögð fjögurra herbergja  (þrjú góð svefnherbergi) 112,7 fm íbúð á annarri hæð við Laugarnesveg í Reykjavík, með fallegu útsýni út á haf.

Um er að ræða  vel skipulagða íbúð í snyrtilegu og vel við höldnu 7 íbúða  fjölbýlishúsi við Laugarnesveg. Íbúðin er björt og rúmgóð. Fallegt útsýni til sjávar.

Stærðir samkvæmt skráningu HMS

Samkvæmt skráningu hjá HMS er heildarstærð eignarinnar 112,7 m², auk 4,4 m² geymslu á jarðhæð.

Almenn lýsing

Íbúðin er staðsett á annarri hæð í snyrtilegu og vel við höldnu fjölbýlishúsi við Laugarnesveg. Sameign hússins er snyrtileg og vel um gengin. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð með  gott skipulag.

Íbúðin skiptist í anddyri, gang, þrjú góð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu og svalir.

Nánari lýsing:

Anddyri:

Komið er inn í rúmgott anddyri, góður fataskápur. Ljós gólfefni liggja frá anddyri inn í íbúðina og tengja rýmin vel saman.

Stofa:

Stofan er stór og björt og myndar hjarta heimilisins. Þar er gott rými fyrir bæði setu- og borðstofuhluta og stórir gluggar hleypa inn mikilli birtu. Úr stofu er útgengt út á svalir þar sem hægt er að njóta útsýnisins og horfa út á hafið.

Eldhús:

Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt, með lakkaðri upprunalegri innréttingu sem býður upp á óvenju gott skápapláss. Vinnufletir eru rúmir og í enda eldhúss er borðkrókur.

Svefnherbergi:

þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi. Herbergin eru björt og nýtast vel.

Baðherbergi:

Baðherbergið er snyrtilegt. Það er flísalagt í hólf og gólf og búið sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og opnanlegum glugga sem tryggir góða loftræstingu og náttúrulega birtu.

Geymsla

Með eigninni fylgir 4,4 m² geymsla á jarðhæð.

Umhverfi og staðsetning

Laugarnesvegur er vinsæl og rótgróin gata í austurhluta Reykjavíkur. Stutt er í útivistarsvæði við sjóinn, gönguleiðir, þjónustu og helstu samgönguæðar. Svæðið nýtur mikilla vinsælda vegna nálægðar við strandlengjuna og greiðra samgangna.

Falleg, vel skipulögð og björt íbúð á eftirsóttum stað, með rúmgóðum rýmum, svölum og fallegu útsýni til sjávar.

Nánari upplýsingar veita:

Úlfar Þór Davíðsson. lögg. fasteignasali,  í síma 788-9030,  tölvupóstur,  ulfar@fastborg.is

Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali , í síma 892-4944, tölvupóstur,  borkur@fastborg.is.

Kort af Laugarnesvegur 104

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð