HÚSASJÁ

Fellsmúli 22

05-0001 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

76 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1967

Byggingarár

6855 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



311 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

855.072 kr/m²

Björt og falleg þriggja til fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð, gluggar á 3 vegu og eignin með frábærri staðsetningu. Íbúðin samanstendur af forstofu, baðherbergi, eldhúsi, stofu, þremur svefnherbergjum, verönd utan við stofuglugga, geymslu og aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Birt stærð séreignar er 75,9 fm.

Nánari lýsing:

Gengið er niður einn stigapall að íbúðinni úr andyri hússins. Geymslan er á vinstri hönd undir stiganum upp á næstu hæð. Gengið er inn í lokað rými sem er nýtt af eigendum sem forstofa, en rýmið er partur af sameign og aðgengi að rafmagnstöflu hússins innan þess. Komið er inn í íbúðina á á vinstri hönd er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, góð sturta með hengi, klósett, skápar og vaskur með skúffueiningu. Eldhúsið er mjög bjart með glugga á tvo vegu, aflangt með plássi fyrir matarborð, innrétting á gagnstæðum veggjum, flísar á milli, efri og neðri skápar, vaskur, tengi fyrir uppþvottavél og eigendur eru einnig með tengi fyrir þvottavél í eldhúsinu. Eldavél, ofn og pláss fyrir einfaldan ískáp með góðri hæð. Nýlegt parket er á gólfi eldhúss. Stofan/borðstofan er björt og rúmgóð, með stórum gluggum og parketi á gólfi. Búið er að útbúa tröppur og stórt opnanlegt fag til að komast út á snotra verönd fyrir utan gluggann sem þau nota sem sitt útisvæði. Svefnherbergin voru upphaflega tvö, mjög rúmgóð en búið er að skipta stærra herberginu upp og eru því þrjú svefnherbergi í dag, tvö þeirra með fataskápum. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er á sameign.

NÁNARI UPPLÝSINGAR.Pantið skoðun, Kristbjörn Sigurðsson lgf í síma 692-3000 | ks@midbaer.is

Kort af Fellsmúli 22

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13
Fellsmúli 22, 05-0001 | Húsasjá