Síðumúli 31
02-0101 · 108 Reykjavík



373 dagar á sölu
135.000.000 kr
345.004 kr/m²
Miklaborg kynnir: Til sölu lager- eða iðnaðarhúsnæði á besta stað í Múlunum. Stærð húsnæðisins er 391,3 fm og skiptist tvö svipað stór rými sem auðvelt er að sameina ef á þarf að halda. Tvær innkeyrsluhurðir og tvær gönguhurðir. Húsnæðið er með aðkomu á baklóð á rúmgóðu bílaplani. Laust strax eða fljótlega.
Vinstra bil er með innkeyrsluhurð og gönguhurð í móttöku. Í móttöku er snyrting og möguleiki er að setja upp eldhúskrók, gluggar út á baklóð. Lager er L-laga með ágæti lofthæð.
Hægra bil er með gönguhurð og minni innkeyrsluhurð. Snyrting en lager er tvískiptur í fremri og innri sal.
Aðkoma að húsnæðinu er niður á milli húsa en við tekur rúmgott bílaplan með góðri aðkomu í húsnæðið.
Húsnæðið ber virðisaukaskatt. .
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og ástandsskýrslu frá frá maí 2023 er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








