Háaleitisbraut 123
08-0402 · 108 Reykjavík



7 dagar á sölu
98.900.000 kr
623.975 kr/m²
LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson, lgf., kynna Háaleitisbraut 123.
Falleg fimm herbergja íbúð með stórbrotnu útsýni á fjórðu (efstu) hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi.
Eignin skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
Bílskúr er í bílskúrslengju framan við húsið.
Nánari lýsing
• Skápur er á gangi framan við íbúð.
• Forstofa/hol er parketlögð með fataskápum.
• Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum skáp og útgengi á suðursvalir.
• Svefnherbergi II með glugga til suðurs.
• Svefnherbergi III með innbyggðum skáp og glugga til suðurs.
• Stofa/borðstofa með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og vesturs og útgengi á 10,5 fm suðursvalir.
• Svefnherbergi IV er innaf stofu með glugga til norðurs.
• Eldhús er rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu, borðkrók og gluggum til norðurs.
• Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og glugga til norðurs.
Sameign, bílskúr og lóð:
• Sér geymsla með glugga er í kjallara.
• Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með iðnaðarþvottavél og þurrkara.
• Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
• Bílskúr er í bílskúrslengju framan við húsið.
• Lóðin er stór og leikvöllur er á milli húsanna.
• Samkvæmt HMS er eignin skráð 158,5 fm, þar af er bílskúr 23,6 fm og geymsla 6,8 fm.
• Næg bílastæði eru á lóð.
- Stutt er í alla helstu þjónustu, matvöruverslanir, skóla og leikskóla -
Viðhald og endurbætur
• Húsið hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum árin, m.a. múrviðgerðir og málun eftir þörfum.
• Skipt hefur verið um allt gler í íbúðinni á síðastliðnum 20 árum, síðast á norðurhlið fyrir um 4 árum.
• Öll opnanleg fög í íbúðinni hafa verið endurnýjuð á síðastliðnum 15 árum.
• Járn og pappi á þaki voru endurnýjuð fyrir um 25 árum. Einnig hefur dren verið endurnýjað.
• Harðparket var lagt á stóran hluta íbúðar fyrir um 6 árum ásamt uppsetningu nýrra hurða.
• Ný sérsmíðuð eldhúsinnrétting var sett upp árið 2012 ásamt fataskáp á gangi.
• Snjóbræðsla var sett í gangstétt frman við húsið árið 2023.
• Þak og veggir bílskúrs voru málaðir árið 2024, framkvæmd af bílskúrseigendum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


































