HÚSASJÁ

Álftamýri 54

01-0401 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

133 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1963

Byggingarár

4304 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



448 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

561.469 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Álftamýri 54, rúmgóða og bjarta fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð, ásamt bílskúr. Eignin er skráð 133,4 m2, íbúðin er 110,3 m2 og bílskúrinn 23,1 m2 samkvæmt HMS og er geymsla 10,5 m2. Íbúðin er með glugga á þrjá vegu og þvottahús er innan íbúðar. Staðsetningin er frábær og stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla og íþróttasvæði Víkings er í göngufæri í Safamýrinni. Frábært útsýni!

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn í hol með flísum á gólfi.

Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu og flísum á gólfi og er það opið út í holið.

Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar og með parket á gólfi. Útgengt er út á suður svalir úr stofunni og er mikið útsýni úr henni til suðurs og austurs.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi en þar hafa eigendur komið fyrir þvottavél og er það í dag notað sem þvottahús og fataherbergi.

Herbergi II er með parketi á gólfi.

Herbergi III er með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og sturtuklefa.

Afar rúmgóð geymsla er í sameign og er hún 10,5 m2.

Bílskúrinn er 23,1 m2 og er bílskúrshurðin nýleg með gönguhurð.

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Rafmagn var endurnýjað í allri íbúðinni ásam rofum og tenglum fyrir nokkrum árum.

Hér er rúmgóð eign á ferðinni í hinu vinsæla Háaleitishverfi, í húsi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Álftamýrarskóli er við hlið hússins og þangað er um 3 mínútna gangur. Sjón er sögu ríkari bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni lgfs í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is. Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Álftamýri 54

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41