HÚSASJÁ

Álftamýri 36

03-0203 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

125 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1964

Byggingarár

4308 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr



80 dagar á sölu

sell

77.900.000 kr

624.199 kr/m²

LANDMARK kynnir: Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja, 103 fm íbúð á 2. hæð auk auk 20,9 fm bílskúrs á mjög vinsælum stað, miðsvæðis í Reykjavík.  Samtals 124,8 fm.  Frábær staðsetning - stutt í alla helst þjónustu eins og skóla, leikskóla, verslanir og íþróttaaðstöðu Víkings í Safamýri.

||  Nýlegar framkvæmdir:  Gluggar voru endurnýjaðir að hluta 2023 og aðrir málaðir.  Dyrasími endurnýjaður.  Holuviðgerðir á bílaplani og planið málað * ||

Forstofa og hol eru með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.

Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi með útgengi út á suðursvalir sem eru yfirbyggðar.

Eldhúsið er með korki á gólfum, viðarinnréttingu og góðum borðkrók.  Ísskápur getur fylgt. Flísalagt milli efri og neðri skápa.

Herbergi I er mjög rúmgott með dúk á gólfi, nýlegum fataskáp og vestur svölum.

Herbergi II er með dúk á gólfi og fataskáp.

Herbergi III er með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél.  Opnanlegur gluggi.

Bílskúrinn er í bílskúrslengju, gengt húsinu.  Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum og hiti.

Í sameign er sérgeymsla íbúðar ásamt hjólageymslu og sameiginlegu þvotta- og þurrkherbergi.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is

----------------------------------------------------------

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Álftamýri 36

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25