HÚSASJÁ

Skaftahlíð 12

01-0301 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

110 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1958

Byggingarár

4384 m²

Lóð

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



2 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

816.530 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Mjög björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð (endi) í þessu vinsæla húsi sem var hannað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. Aðeins er ein íbúð á hæð. Stórir gluggar á öllum hliðum hússins sem gera eignina mjög bjarta. Á síðastliðnum árum hefur stærstur hluti glugga í húsinu verið endurnýjaður ásamt svalahurðum. Þrjú svefnherbergi - tvennar svalir - gott skipulag. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 103,5 fm og geymslan 6,6 fm eða samtals: 110,1 fm.

Nánari lýsing eignar: Gengið er af snyrtilegum stigapalli inn í forstofu með fataskáp. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Frá stofu er gengið út á sólríkar suðursvalir. Eldhús með hvítri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, gott skápapláss. Eldhúsið er bjart með góðum glugga. Svefnherbergisgangur með fataskáp. Þrjú svefnherbergi og eru tvö þeirra með fataskáp. Frá einu herbergjanna er gengið út á svalir. Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtu, blönduartækin voru endurnýjuð árið 2018, gluggi á baðherbergi. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla sem er sameiginlegt með íbúðunum fjórum í stigaganginum. Upphitaður göngustígur framan við húsið. Bílastæði á lóðinni eru 30 og þar að auki fjögur hleðslustæði sem tilheyra húsinu.

Mjög vel skipulögð íbúð í þessu vinsæla húsi teiknuðu að Sigvalda Thordarsyni og aðeins ein íbúð er á hæð í stigagangi. Hverfið er mjög fjölskylduvænt með fjölda leik-og grunnskóla ásamt menntaskóla. Öskjuhlíð með sýna ósnortnu náttúru í göngufæri sem og Klambratúnið með góðum útivistarsvæði og kaffihúsi.

Framkvæmdir og viðhald:

2021 Frárennslislagnir fóðraðar.

2023 Endurbætur á ytra byrði hússins. Steypuviðgerðir og húsið heilmálað.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR

Fylgdu mér á Facebook

Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Skaftahlíð 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22