HÚSASJÁ

Langahlíð 15

02-0301 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

106 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1949

Byggingarár

2375 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

94.900.000 kr

892.756 kr/m²

Falleg og vel skipulögð 106.3 fm 6 herbergja íbúð á 3. hæð á vinsælum stað við Lönguhlíð 15. Búið er að innrétta stúdíó-íbúð í risi með baðherbergi og eldhúskrók (tilvalið til útleigu). Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum árin. Virkilega vel staðsett eign í eftirsóttum stað í rótgrónu og góðu hverfi í nálægð við skóla, leikskóla, Klambratún, Öskjuhlíð og í göngufæri við miðborgina.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 201-3389, nánar tiltekið eign merkt 03-01, birt heildarstærð 106.3 fm (Gólfflötur íbúðarinnar er töluvert stærri þar sem hluti eignarinnar er undir súð).  Þar af er íbúðin skráð 89,8 fm og geymslur í risi 16,5 fm (geymslur 0401, 0402, 0403 og 0404), Opnað hefur verið milli geymslna og innréttuð falleg stúdíó íbúð.

Eignin skiptist í: Hol, 3 svefnherbergi, stofur, eldhús, baðherbergi ásamt rýmis í risi. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og lítil geymsla á stigagangi.

Nánari lýsing eignarinnar:

Hol: Parketlagt, innbyggður fataskápur, tenging við öll herbergi, stofur, eldhús og bað.

Stofur: Tvær samliggjandi stofur með fallegum kvistum og fallegu útsýni. Parket á gólfi.

Eldhús: Búið er að færa eldhúsið í aðra stofuna. Snyrtileg hvít innrétting og parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Rúmgott, fallegur kvistur, hvítur fataskápur, parket á gólfi.

Herbergi 2: Rúmgott, fallegur kvistur, innbyggður fataskápur, parket á gólfi.

Herbergi 3: Rúmgott með parketi á gólfi, hvítur fataskápur (var áður eldhús).

Bað: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, ljós innrétting.

Ris: Í risi er snytileg parketlögð stúdíó-íbúð, baðherbergi með sturtu og eldhúskrókur.

Um er að ræða falleg og skemmtileg eign sem jafnframt býður nýjum eigendum upp á mikla möguleika til breytinga.

Einstaklega góð staðsetning í grónu hverfi við Klambratún og steinsnar frá miðbæ RVK.

Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Langahlíð 15

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37