HÚSASJÁ

Bólstaðarhlíð 62

03-0302 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

115 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1963

Byggingarár

5997 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



3 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

685.491 kr/m²

BJÖRT OG RÚMGÓÐ 4RA HERB. ÍBÚÐ MEÐ VESTUR SVÖLUM - 105 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 115,1 fm.

Um er að ræða 4ra herb. íbúð á 3. hæð (tvær og hálf hæð upp) í steinsteyptu fjölbýlishúsi byggðu árið 1963. Íbúðin er skráð 109,6 fm. og sérgeymsla í kjallara skráð 5,5 fm. Eignin skiptist í stóra stofu og holi, eldhúsi  og svefnherbergisálmu með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Hlutfalstala íbúðarinnar í heildarhúsinu Bólstaðarhlíð 58-62 er 3,81% en í Bólstaðarhlíð 62 er hann 11,40%.

Forstofa/hol: Flísar á gólfi, rúmgott og góðir fataskápar.

Stofa/borðstofa: Bjartar og mjög rúmgóðar, parket á gólfum og útgangur út á vestur svalir, búið er að opna inn í eldhúsið.

Eldhús: Eldri innrétting með góðuskápa- og vinnuplássi, flísar á gólfi.

Svefnherbergin: Parketlögð, hjónaherbergi með góðum fataskápum, en einnig er fataskápur í minna barnaherberginu. Útgangur út á svalir úr hjónaherberginu.

Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhengi, innrétting undir handlaug, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél.

Geymsla: Góð 5,5 fm. geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.

- Fjölskylduvæn íbúð á eftirsóttum stað.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.

Sameign: Vel um gengin og snyrtileg. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara og er gott þurrkherbergi við hliðina á þvottahúsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins auk hitakompu og sorptunnurýmis.

Að sögn eigenda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum tíðina, en árið 1998 var þakið endurnýjað, 2009 voru þakrennur og dren endurnýjað, árið 2016 voru múrviðgerðir samhliða málun blokkarinnar og skipt um gler og glugga á allri austurhlið ásamt því að þakið var málað, árið 2019 var stigagangur málaður, árið 2024 var skiptu um þrýstijafnara og árið 2025 var nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina ásamt uppsetningu nýrra rofa og tengla og skipt um teppi á sameign.

ATH! Vinsæl staðsetning í nálægð við fjölbreytta þjónustu s.s. skóla, leikskóla, útivistar og menningarsvæðið við Klambratún og Kjarvalstaði ásamt því að stutt er í miðbæ Reykjavíkur með allt sem hann hefur upp á að bjóða ofl.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Kort af Bólstaðarhlíð 62

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð