HÚSASJÁ

Skipholt 27

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

1232 m²

Stærð

1951

Byggingarár

630 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



435 dagar á sölu

sell

750.000.000 kr

608.865 kr/m²

Kjöreign ehf., Ármúla 21, Reykjavík, fasteignasala sími 533-4040 kynnir heildareignina nr. 27 við Skipholt, Reykjavík. Í húsinu er rekið hótel (Brimhótel). Birt heildarstærð er 1.231,8 fm.

Í hótelinu er alls 35 herbergi, þar af eru 24 þeirra með sér baðherbergjum.

Nánari lýsing á hverri hæð. Jarðhæðin, 1. hæðin, birt stærð er 368,9 fm. sem skiptist í anddyri, móttöku, matsal, eldhús og fimm herbergi í framhúsinu og sex herbergi í tengibyggingunni, eða alls 11 herbergi.  Öll herbergin á þessari hæð eru með baðherbergjum.

Önnur hæðin., birt stærð er 359,7 fm. Hæðin skiptist í 8 herbergi í framhúsinu og 4 herbergi í tengibyggingunni eða samtals 11 herbergi. Auk þess eru sameiginlegar snyrtingar og sturtuböð, skáli og eldhús. Flest herbergjanna eru á bilinu 14-17 fm.

Þriðja hæðin, birt stærð er 359,7 fm. Hæðin skiptist í 8 herbergi í framhúsinu og 4 herbergi í tengibyggingunni eða samtals 12 herbergi. Flest herbergjanna eru á bilinu 13-17 fm. Auk þess er setustofa á hæðinni, snyrtingar, sturtuböð og eldhús á hæðinni.

Kjallarinn, birt stærð er 143,5 fm. Í kjallaranum er þvottaaðstaða, geymslur, atvinnurými í útleigu og íbúð. Aðkoma er að kjallaranum að norðanverðu.

Heimil stækkun. Samkvæmt nýju deiliskipulagi er heimil fyrir stækkun á húsinu ca. 250 fm. Gatnagerðargjöld eru ekki greidd.

Innbú. Allt innbú fylgir með í kaupunum svo og bókunarkerfið og nafn hótelsins. Samkomulag er um listaverk sem eru til staðar í hótelinu.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is

Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignsali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is

Kort af Skipholt 27

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu