HÚSASJÁ

Skipholt 24

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

102 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1953

Byggingarár

308 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



483 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

783.333 kr/m²

Prima Fasteignasala kynnir Fallega 6 herbergja efri hæð og rishæð á góðum stað. 4 svefnherbergi, 2 stofur, baðherbergi og þvottahús í kjallara ásamt 2 geymslum. Nokkuð endurnýjuð íbúð m.a nýuppgerð baðherbergi. Birt stærð er 102 fm heildargólfflötur er um 150 fm. Eignin er laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Oscar Clausen lgfs, email: oc@primafasteignir.is eða s: 8618466.

Neðri hæðin: Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum, bjart og opið eldhús með sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu, stofa og borðstofa. Nýlega tekið í gegn baðherbergi með “walk in” sturtu. Parket á gólfum á allri hæðinni fyrir utan baðherbergi þar sem eru flísar á gólfi.

Rishæðin: Gengið er upp stiga frá miðju neðri hæðar. Í risinu eru 3 svefnherbergi 2 með kvistgluggum og þriðja með tveim velrux gluggum.

Kjallari: Rúmgott þvottahús sameiginlegt með neðri hæð, þvottahús með gluggum.

Geymslur: geymslurnar eru 2 í kjallara sem fylgja íbúðinni.

Stærðir; Birt heildarstærð er 102 fm. Neðri hæðin er skráð 70,2 fm., rishæðin er skráð 27,2 fm. (gólfflötur mun stærri 42,3), geymsla er skráð 4,6 fm. og þvottahús er skráð 15,6 fm. Sameign og svo ein sér geymsla til viðbótar sem er ekki skráð í fermetra fjölda.

Sameiginlegur inngangur er með neðri hæðinni.  Sameiginleg geymsla undir útidyratröppum. Góður garður í sameign.

Mögulega má byggja bílskúr.

Viðhald og endurbætur :

Skipt um allar neysluvatnslagnir í íbúðinni.

Baðherbergið var tekið í gegn fyrir ca 4 árum.

Dregið nýtt rafmagn og nýjar töflur.

Skipt um járn og pappa á þaki

íbúðin sjálf tekin í gegn ca 2010 og þá sérsmíðuð eldhúsinnrétting.

Sameign hefur verið máluð, skipt um teppi á stigagangi og sett ný gólfenfi (parket) í risherbergi.

Nýbúið að klára að drena í kringum húsið.

íbúð er öll ný máluð.

Frábær staðsetning. Þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:

Oscar Clausen lgfs, email: oc@primafasteignir.is eða s: 8618466.

Kort af Skipholt 24

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð