HÚSASJÁ

Stórholt 14

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

80 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1947

Byggingarár

489 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

867.246 kr/m²

STÓRHOLT 14, 105 REYKJAVÍK.

Helgafell fasteignasala kynnir þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð.

Í kjallara er rúmgóð geymsla (herbergi) með ÚTLEIGUMÖGULEIKA.

Húsið var byggt árið 1947. Merkt matseining hjá HMS er 01-0101.

Birt stærð eignar er skráð 80,6 fm.

ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG FLEIRI GÖGN

Komið er inn í sameign þar sem innangengt er í kjallara.

Parketlagt anddyri/gangur með fatahengi.

Björt parketlögð stofa er opin við eldhús. Flísalagt eldhús með borðkrók, nýlegri innréttingu, efri og neðri skápum, eyju og span helluborði.

Innfelld lýsing undir efri skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með.

Flísalagt baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga.

Tvö parketlögð svefnherbergi. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp.

Í kjallara er rúmgott 16,7 fm. herbergi (skráð sem geymsla) með útleigumöguleika, opnanlegum glugga og aðgengi að 3,2 fm.baðherbergi (skráð sem geymsla). Er í útleigu í dag.

Einnig er 5,4 fm. sameiginleg geymsla með efri hæð, skráð sem þurrkherbergi í eiganskiptayfirlýsingu.

Sameiginlegt þvottahús er með sturtuaðstöðu, glugga og máluðu gólfi.

Í sameiginlegum garði er sólpallur til suðurs.

Annað: Skipulagi íbúðar var breytt 2005 frá teikningu en eldhús var áður borðstofa og barnaherbergi áður eldhús.

Allir gluggar og gluggakistur nýlega málað að innan.

Falleg eign á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veita:

Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is

Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is  ----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Stórholt 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27