HÚSASJÁ

Skeggjagata 15

01-0001 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
5 myndir

30 m²

Stærð

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1937

Byggingarár

208 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



507 dagar á sölu

sell

37.900.000 kr

1.148.485 kr/m²

Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Hlynur Bjarnason lögg. fasteignasali ásamt Betri Stofunni Fasteignasölu kynna 33fm, 2 herbergja íbúð í kjallara í 3 íbúða húsi að Skeggjagötu 15, 105 Reykjavík auk sérgeymslu undir útitröppum. Geymsla ekki talin með í fermetratölu. Eignin skiptist í alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Stór, gróinn og fallegur garður í kringum húsið. Mjög góð staðsetning í norðumýrinni með miðbæinn með allri sinni nærþjónustu, menningu og mannlífi í göngufjarlægð. Eignin er í útleigu í dag. Sami leigutaki búinn að vera lengi og vilji til að halda áfram. Nýr kaupandi tekur yfir núverandi leigusamning. Leigan er vísitölutengd og er núna 230.000kr. Árs uppsaganarfrestur er á leigusamning.

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS verður 32.700.000kr

Bókið skoðun hjá Hlyni Bjarnasyni lögg. fasteignasali í síma 697-9215 / hlynur@betristofan.is eða Hreiðar Levý lögg. Fasteignasali í síma 661-6021 / hreidar@betristofan.is

Eignin Skeggjagata 15 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-1154, birt stærð 30.0 fm. Auk sérgeymslu á jarðhæð innan hús og kaldri geymslu undir útitröppum sem ekki eru inni í fermetratölu eignar.

Nánari lýsing:

Gengið er inn um inngang á hlið hússins. Komið er inn í sameiginlegan geymslu og þvottahúsagang hússins. Inngangur í íbúð við enda gangs á vinstri hönd. Komið er inní lítið hol sem tengir saman öll rými íbúðar. Baðherbergi er með sturtu, salerni og vask. Opið og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi. Gengið í svefnherbergi innaf holi.

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Bjarnason lögg. fasteignasali í síma 697-9215 / hlynur@betristofan.is eða Hreiðar Levý lögg. Fasteignasali í síma 661-6021 / hreidar@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Skeggjagata 15

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð