HÚSASJÁ

Vífilsgata 12

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

50 m²

Stærð

1

Herbergi

1937

Byggingarár

210 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

1.078.585 kr/m²

Domusnova og Vilborg kynna:

FALLEGA OG VEL SKIPULAGÐA 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1.HÆÐ VIÐ VÍFILSGÖTU 12 Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR.

Íbúðin sem er björt og falleg er staðsett í rólegri íbúðargötu miðsvæðis í borginni þar sem örstutt er í iðandi mannlíf borgarinnar.

Skipulag eignarinnar er eftirfarandi: Stofa, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, geymsla og sameigninlegt þvottahús.Skv. HMS er eignin skráð 50.9 fm2.

Framkvæmdir á undanförnum árum:Skipt var um alla glugga í íbúðinni árið 2019.Frárennslislangir og rafmagn var endurnýjað árið 2002.Þak málað og yfirfarið 2012.Húsið var sprunguviðgert 2013.Nánari lýsing:

Forstofa er sameiginleg með íbúð á efri hæð, flísar á gólfi.

Hol: Frá forstofu er gengið inn í hol sem tengir vistarverur íbúðarinnar, flísar á gólfi.

Eldhúsið er bjart og fallegt með innréttingu sem var nýlega sprautulökkuð hvít með góðum skápum og tengi fyrir uppþvottavél. Span helluborð frá Wirlhpool keypt 2020 og Electrolux ofn keyptur 2021.Flísar á gólfi.

Stofan er björt með hornglugga til suðvesturs.  Eikarparket á gólfi.

Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum. Eikarparket á gólfi.

Baðherbergið er með nýlegum sturtuklefa, flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og opnanlegum glugga.

Þvottahús er sameiginlegt í sameign þar sem hvor íbúð er með sína vél.

Geymslurými íbúðar er í kjallara, sameigninlegt með íbúðinni á efri hæð.

Einnig er sér geymsla íbúðar, óupphituð í kjallara.

Einstaklega falleg eign sem vert er að skoða í rólegu hverfi  þar sem miðborgin er í göngufæri með iðandi mannlífi.

Í næsta nágrenni má finna, matvöruverslanir, kaffihús, veitingastaði, Laugaveginn með ótal verslunum og afþreyingu, Sundhöll Reykjavíkur ásamt skemmtilegum útivistarsvæðum s.s. Klambratún og Öskjuhlíð.

Nánari upplýsingar veita:

Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.891 8660 / vilborg@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Vífilsgata 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu